Stjórnmál:
Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:
Mikið skil ég Jón Gnarr vel. Hann bauð sig fram til þingsetu þar sem hann þráði helst af öllu að geta hjálpað ungu fólki sem hafði ratað í ógæfu. Auðvitað vissi Jón að önnur mál yrðu líka á dagskrá þingsins og þingflokksins. Hann hefur tekið þátt í mörgum málum.
Hitt er annað. Að hans helsta baráttumál fékkst ekki rætt. Alltaf voru önnur mál „þýðingarmeiri“ eða komin á lokapunkt. Jón sættist á það þar til honum þótti nóg um. Stóð uppi og tilkynnti að hann vildi ekki raða sínu helsta mál aftast i dagskránni. Viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og ár eftir ár. Ég segi; vel gert Jón Gnarr. Vel gert.
Nú þarf Jón ekki að
sitja þingflokksfundi.
Nú þarf Jón ekki að sitja þingflokksfundi þar sem hans mál kemst ekki að. Þess í stað situr hann á sínum þingmannskontór og undirbýr aðrar leiðir til að geta komið ungmennum í miklum vanda til aðstoðar. Hvert og eitt þeirra skiptir meira máli en svo margt, margt annað.
Það er Jóni líkt að standa með sjálfum sér, standa með ungmennum í vanda. Í huganum stend ég við hlið Jóns og hvet hann áfram. Það má jafnvel tala um óútreiknanleg verðmæti í hverri þeirri sál sem lifir djöfullegu fantalífi. Hvert og eitt þeirra sem bjargast er meira virði en þras um smærri mál.
Takk fyrir fórnfýsina Jón Gnarr alþingismaður.