- Advertisement -

Við erum að laga Ísland og látum verkin tala

Alþingi:

Guðmundur Ari Sigurjónsson, nýkjörinn varaformaður Samfylkingarinnar, sagði í Alþingi í dag:

…með styrka
hönd á stýri.

„Við erum að sækja fram með styrka hönd á stýri. Núverandi ríkisstjórn fékk skýrt umboð til breytinga; breytinga um að rjúfa kyrrstöðu á Íslandi, hvort sem við erum að horfa á uppbyggingu innviða, uppbyggingu samgönguinnviða út um allt land, orkumannvirki eða að tryggja að fólk geti búið, ferðast og starfað hringinn í kringum landið. Því kyrrstöðu fylgir nefnilega líka kostnaður og mikilvægt er að rjúfa kyrrstöðuna þegar kemur að velferðarþjónustu hér í landi. Kyrrstaða birtist t.d. í bið eldri borgara eftir hjúkrunarrými eða bið barna eftir greiningu eða meðferðarúrræði. Þetta er sú kyrrstaða sem við erum að rjúfa þessi misserin og erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur, hvort sem horft er til uppbyggingar hjúkrunarrýma eða þeirrar staðreyndar að engin bið er eftir meðferðarúrræði barna og ungmenna á Íslandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…við erum líka
að sækja fram…

Við höfum líka tekið á húsnæðisóörygginu á Íslandi með því að setja fleiri hagkvæmar íbúðir á markað, auka stuðning við fyrstu kaupendur og boðað takmarkanir á leiguhækkunum með svokallaðri leigubremsu á næstu misserum. Öll þessi skref eiga það sameiginlegt að tryggja að ungt fólk komist út á fasteignamarkaðinn og að leigjendur búi við aukinn fyrirsjáanleika og öryggi þegar kemur að húsnæðisöryggi. En við erum líka að sækja fram þegar kemur að verðmætasköpun. Með skýrri atvinnustefnu stjórnvalda, uppbyggingu innviða, eflingu velferðarinnar, menntakerfisins o.s.frv. erum við að tryggja að verðmætasköpun aukist hér á Íslandi, sem er náttúrlega lykilþáttur í að standa undir velferðinni á Íslandi. Þannig á árangur ríkisstjórnarinnar að birtast, í daglegu lífi fólks; að það sé auðveldara að ferðast milli staða, að raforkureikningurinn lækki og að það sé auðveldara að sækja sér menntun og öruggt húsnæði, því að þetta er verkefnið. Við erum að laga Ísland og við erum að láta verkin tala.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: