Alþingi:
Sigurjón Þórðarson Flokki fólsins:
„Það sem ég ætla að gera hér að umtalsefni er upplýsingaóreiða elsta flokks landsins. Nú stendur yfir vinna við fjárlög þar sem markmiðið er að loka fjárlagagatinu. Ríkisstjórnin hefur lagt til hvort tveggja sparnað og auknar tekjur. Flestir flokkar á þingi eru sammála um að tekjur ríkisins eigi að duga fyrir útgjöldum en samt sem áður leggst stjórnarandstaðan gegn flestum aðgerðum til að svo megi verða. Sýnu lengst gengur Framsóknarflokkurinn með fjarstæðukenndum útreikningum sem minna helst á æfingar Sölva Helgasonar.
Nýlega birti formaður Framsóknarflokksins grein undir þeirri fyrirsögn að ríkisstjórnin sé að skera niður þjónustu við börn þegar staðreyndin er þveröfug. Hæstvirtur mennta- og barnamálaráðherra hefur einfaldlega brugðist við skýrslu Ríkisendurskoðunar um að innleiðing farsældarlaga fyrri ríkisstjórna hafi brugðist, m.a. vegna ónógs undirbúnings, skorts á upplýsingum og samhæfingu og þess að innviðir þjónustu hafi ekki verið til staðar. Verið er að auka fjármuni í málaflokkinn um 3 milljarða en breyta útdeilingu fjárins þannig að það mæti þörfum barna og geri það markvissara. Það er m.a. með því að 700 milljónir verða áfram hjá ráðuneytinu til farsældar og tengdra verkefna. Framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030 er fullfjármögnuð með 16 aðgerðum, m.a. með stuðningi við sveitarfélögin.
Nýverið voru auglýstar 474 millj. kr. til sveitarfélaga vegna farsældar barna og gegn ofbeldi barna. 4,5 milljarðar fara til barna með fjölþættan vanda. Framlag til Barna- og fjölskyldustofu hækkar. Þannig er ljóst að ríkisstjórnin er að bæta miklum fjármunum til margs konar þjónustu við börn og til að standa með sveitarfélögunum við að veita börnum bætta þjónustu á Íslandi.“