Stjórnmál:
Bergþór Ólason er ekki bjartsýnn fyrir hönd formanns Viðreisnar. Sjálfur hefur hann átti í vandræðum í sinni þingmennsku:

Úr Mogga dagsins: „Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins telur að ólgan innan Viðreisnar eftir úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokknum eigi eftir að ágerast, enda innanmeinin fleiri, og segir augljóst að staða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns flokksins sé orðin afar þröng.
Staða ÞKG eins vond
og hún getur orðið.
Hann telur jafnvel mögulegt að til hallarbyltingar geti komið, líkt og þegar Þorgerður tók við formennskunni af Benedikt Jóhannessyni tveimur vikum fyrir kosningar 2017.
Þetta kemur fram í Dagmálum Morgunblaðsins, þar sem Bergþór ræddi einkum nýtt þingmannafrumvarp sitt um niðurlagningu Fjölmiðlanefndar, en í lok viðtalsins barst talið að átökunum innan Viðreisnar.
„Ég myndi halda að staða formanns Viðreisnar sé næstum því eins vond og hún getur orðið,“ sagði Bergþór. Honum þótti óskiljanlegt og óvarlegt hjá Þorgerði að fara í tveggja vikna ferð til útlanda þegar óánægjan kraumaði í flokki hennar.
Bergþór sagðist telja líklegt að til svipaðra forystuskipta gæti komið og þegar Þorgerður varð óvænt formaður Viðreisnar 2017. Spurður um hugsanlegan arftaka sagðist hann spá því að það yrði „kvenkyns ráðherra“, en tók skýrt fram að það væru vangaveltur, ekki upplýsingar um átök. Þar á hann við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra.“