- Advertisement -

Ólíkt hafast þeir að Einar Þorsteinsson og Guðmundur Árni Stefánsson

Kosningar: Oddný Harðardóttir skrifaði eftirfarandi grein:

„Hér koma þrjú atriði sem ég vil segja um sveitarstjórnarkosningar:

1) Samfylkingin í Suðurnesjabæ vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Fékk 34% atkvæða og þrjá menn kjörna. Hafði verið í meirihluta á kjörtímabilinu. Aðeins vantaði 6 atkvæði til að fá fjórða manninn inn. Hvar á landinu fékk flokkurinn meira fylgi?

2) Mér finnst tíðindum sæta að Guðmundur Árni varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti flokksins í Hafnarfirði segi af sér vegna þess að flokkurinn tapaði tveimur mönnum. Til samanburðar lýsir Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík yfir sigri þegar flokkurinn tapar þremur mönnum eftir að hann sjálfur hafði klúðrað frá sér borgarstjórastólnum á kjörtímabilinu. Ólíkt hafast þeir að. Takk fyrir samstarfið Guðmundur Árni.

Þú gætir haft áhuga á þessum

3) Ekkert fer verr í kjósendur en innanflokksátök. Þau voru ekki samstíga í Samfylkingunni í Reykjavík og engum duldist að forysta flokksins fór gegn borgarstjóranum. Þau fundu fæst það hjá sér að tala stolt um hvað gott hafi verið gert í valdatíð flokksins í borginni. Lápu frekar upp aftur og aftur gagnrýni aldstæðinga. Það hafði þær afleiðingar, að mínu mati, að flokkurinn bætti ekki við sig í borginni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: