Hvert og eitt atkvæði greitt Miðflokknum getur tryggt endurkomu heilbrigðrar skynsemi í borginni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Kosningar: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson skrifaði:
„Nú gefst tækifæri til að vitna í Ólaf Þ. Harðarson, stjórnmálafræðing. Hann áttaði sig á því að samkvæmt könnun Gallup væri örlítill munur á 3. manni Miðflokks og 6. manni Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Það hvorum megin sá maður lendir mun hafa úrslitaáhrif á hvaða meirihlutar verða í boði.
Ef það yrði M væri borgaralegur meirihluti borðleggjandi en ef það yrði S væri allt upp í loft og erfitt að mynda meirihluta sem gæti endað með samstarfi D og S.
Í kappræðum oddvita í kvöld kjarnaðist valið enn betur. Oddviti Framsóknarflokksins vill mynda meirihluta síns flokks með Viðreisn og Sjálfstæðisflokki (sem dugar ekki) til að tryggja Borgarlínuna og meira af því sama.
Borgaralega-sinnaðir Reykvíkingar sem hafa þráið breytingar og viljið losna við allt ruglið eftir öll þessi ár, vita þá hvað þarf til.
Hvert og eitt atkvæði greitt Miðflokknum getur tryggt endurkomu heilbrigðrar skynsemi í borginni.
Eitt atkvæði í annað getur komið í veg fyrir það.“