- Advertisement -

Þorgerður Katrín: Ísland – dýrasta land í heimi

Er náttúrlögmál fyrir íslenskan almenning að búa við þessi kjör?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Stjórnmál: Þorgerðru Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, skrifaði:

„Það á ekki að vera lögmál að Ísland sé dýrasta land í heimi. En það er staðan og í nýrri greiningu Visku er það dregið fram. Verðlag hér er nú nær tvöfalt hærra en að meðaltali í Evrópu. Hærra en nokkru sinni áður.

Þetta er veruleiki fólksins í landinu. Sem auðvitað finnur fyrir því við hver mánaðarmót, við hverja verslunarferð og hvern reikning sem þarf að greiða. Fjölskyldur og fyrirtæki um allt land eiga skilið að vita hvort þetta þurfi í alvöru að vera svona. Af hverju er matarkarfan alltaf svona dýr hér á Íslandi? Er það hlutskipti okkar Íslendinga að lifa sífellt í fákeppnisumhverfi? Er náttúrlögmál fyrir íslenskan almenning að búa við þessi kjör?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á Alþingi stendur nú yfir umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. Þjóðin á skilið að sjá samning.

Við skuldum börnunum okkar og fólkinu í landinu að sjá hvaða möguleikar standa Íslandi til boða til framtíðar. Af hverju ekki? Það er ekki hættulegt að vita meira.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: