Samflokksmenn í meirihluta í ríkissjórn eiga að einbeita sér að því að þegja í sveitarstjórnarkosningum.
Gauti B. Eggertsson.
Kosningar: Gauti B. Eggertsson, bróðir Dags fyrrum borgarstjóra, skrifaði um úrslitin. Gauti býr í Bandaríkjunum, hann skrifaði þegar úrslit lágu fyrir:
„Skrítin kosningastrategía. Lögmálið í Bandaríkjunum er að þegar forsetinn er í einum flokki, hallast þingið á hinn. Kjósendur vilja balance. Hér virtist forsætisráðherra vera í framboði í öllum kjördæmum. Það var dæmt til að enda í lestarslysi, hvort sem að væri strategían hér á Íslandi eða annars staðar.
Í raun var það þannig sem R-listinn vann. Davíð varð forsætisráðherra, og fólki fannst of mikið að gefa flokknum bæði borgina og ríkisstjórn. Þannig unnu vinstrimenn. Samflokksmenn í meirihluta í ríkissjórn eiga að einbeita sér að því að þegja í sveitarstjórnarkosningum. Viðreisn gerði það vel. Samfylkingin fór í hina áttina.“
Greinin er fengin af Facebooksíðu Gauta.