Stjórnmál: Ari Edwald forystumaður Miðflokksins í Reykjavík brýnir sitt fólk í kosningaham fyrir komandi kosningar. Hann skrifaði:
„Ég fyllist stolti og sigurvissu þegar ég lít yfir þennan flotta hóp. Ég veit að við erum einhuga um að sinna þeirri köllun að bjarga borginni okkar. Við erum einhuga um að byggja nýja Reykjavík á réttlátum grunni. Auðvitað mun gusta hressilega um okkur þegar við bjóðum ráðandi sértrúaröflum byrginn sem hafa hreiðrað makindalega um sig í borgarkerfinu. Það verða hörkuátök en ég veit líka að við munum öll finna fyrir hressandi stormagleði þegar við göngum sameinuð til þeirrar orrustu í þágu frábærs málstaðar. Sendum meirihlutann í verðskuldað frí og björgum borginni!“
Orðalagið hjá Ara er sérstakt.
„Auðvitað mun gusta hressilega um okkur þegar við bjóðum ráðandi sértrúaröflum byrginn sem hafa hreiðrað makindalega um sig í borgarkerfinu.“