- Advertisement -

Þurfum alvöru bæjarstjóra með framtíðarsýn – Sjáið Elliða

Við þurfum bæjarstjórn og bæjarstjóra sem hugsa stærra.

Kosningar: Vilhjálmur Birgisson á Akranesi skrifaði:

„Nú hefur verið kosið á Akranesi og næsta stóra verkefni blasir við — að mynda öflugan meirihluta og ráða alvöru bæjarstjóra með skýra framtíðarsýn fyrir bæinn okkar.

Akranes þarf leiðtoga sem skilur að framtíð samfélagsins byggist fyrst og fremst á öflugu atvinnulífi og aukinni verðmætasköpun. Án verðmætasköpunar verður engin velferð til lengri tíma, engin uppbygging og engin raunhæf leið til að standa undir þeirri þjónustu sem við viljum öll hafa í okkar samfélagi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Við þurfum bæjarstjórn og bæjarstjóra sem hugsa stærra. Sem skilja mikilvægi þess að laða að fyrirtæki, fjárfestingu og ný störf. Sem vilja skapa samkeppnishæf skilyrði fyrir atvinnulífið í stað þess að auka sífellt álögur og skuldir.

Skuldir bæjarins hafa hækkað gríðarlega á síðustu árum og það verður ekki lagað nema með ábyrgum rekstri og öflugri verðmætasköpun.

Sjáið Elliða og hans fólk — þau skilja þetta. Elliði skilur að sterk sveitarfélög verða ekki til fyrir tilviljun heldur með skýrri sýn, öflugu atvinnulífi og metnaði til að skapa verðmæti. Svona leiðtoga þurfum við Akurnesingar að fá ef við ætlum að byggja enn sterkara samfélag til framtíðar.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: