Stjórnmál: Gunnar Smári skrifaði:
„Ef Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking hafna Framsókn er ljóst að flokkurinn verður ekki í meirihluta. Framsókn dugar ekki að mynda meirihluta með Miðflokki. Og þar sem ekki verður myndaður meirihluti nema með Framsókn eða Sjálfstæðisflokki þá er ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn verður í meirihluta. Viðreisn hafnar Miðflokki svo eina leið flokksins í meirihluta er Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og Viðreisn. Og eini kosturinn annar er meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Miðflokks. Svolítið skrítin staða í Hafnarfirði.“