- Advertisement -

Hættum að veita bröskurum aðgang að almannafé

„Gjaldeyrisjöfnuðurinn yrði neikvæður og landið tæki að safna erlendum skuldum, sem gengur ekki til lengdar.“

Ragnar Önundarson.

„Því er oft haldið fram að Ísland sé eina landið sem ekki veitir sjávarútvegi sínum ríkisstyrki. Það er líklega rétt í strangasta skilningi orðsins ríkisstyrkur, en þá gleymist að þessi undirstöðuatvinnuvegur okkar nýtur „þjóðarábyrgðar“ og öðru hvoru „þjóðarstyrkja“.

Þetta gerist gegnum sveigjanlegt gengi gjaldmiðilsins. Þegar aflabrestur eða verðfall verður á útflutningsmörkuðum gefur krónan eftir. Þar með aukast tekjurnar í krónum, þó launakostnaðurinn standi í stað. Verð innfluttra vara hækkar í krónum við gengislækkunina og þannig tekur öll þjóðin á sig að styrkja útflutningsgreinina. Tilgangurinn með þessu er að koma í veg fyrir að mikilvæg fyrirtæki fari í þrot. Það mundi þýða að framleiðslutækin yrðu ekki nýtt til verðmætasköpunar, auk þess sem starfsfólk þessara fyrirtækja mundi missa vinnuna.

Með sveigjanlegu gengi tekur þjóðin „höggið“ saman. Af hverju býr þessi grein við þjóðarábyrgð, en aðrar ekki ? Ástæðurnar eru 1) mikilvægi þess að nýta framleiðslutækin sem best. Að stofna fyrirtæki og gera það lífvænlegt er stórmál og tekur langan tíma, þess vegna 2) höldum við fyrirtækjunum gangandi og 3) verjumst atvinnuleysi, sem er mesta böl sérhvers samfélags. Að lokum er svo 4) sú ástæða fyrir þessu að ef gengið gæfi ekki eftir mundu allir þeir sem ekki missa vinnuna halda lífi sínu og útgjöldum óbreyttum. Gjaldeyrisjöfnuðurinn yrði neikvæður og landið tæki að safna erlendum skuldum, sem gengur ekki til lengdar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Valið er á milli þess að halda gjaldeyrisaflandi fyrirtækjum lifandi eða láta þau fara í gjaldþrot. Þá er tilnefndur skiptastjóri, hans hlutverk er að selja eignir og borga andvirðið upp í skuldir. Eignirnar tvístrast, starfsfólkið og þekking þess tvístrast, viðskiptavinirnir snúa sér annað, tvístrast og sambandið við mikilvæga rofnar og tvístrast.

Hvort viljum við halda fyrirtækjunum lifandi, starfsfólkinu vinnandi, viðskiptavinunum kaupandi og birgjunum aflandi, … eða tvístra öllum verðmætum, vegna sundurþykkju og ergelsis ? Krónan er verkfærið, förum vel með hana. Skiptum ekki meiri tekjum á milli okkar en þjóðarbúið þolir. Til að það gerist verðum við að taka á sjálftöku forréttindafólksins. Hún gerist mest gegnum fákeppnisfélögin og með eignatilfærslum fyrir milligöngu banka og sjóða almennings. Hættum að veita bröskurum aðgang að almannafé.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: