
Kári Jónsson skrifar:
…með tilheyrandi uppkaupum á gjaldeyri, gjaldeyrisforðinn er orðinn 1500-1700 milljarðar samkvæmt SÍ-bankanum, þetta er fórnarkostnaðurinn sem kostar að halda úti örgjaldmiðli sem viðskiptalöndin okkar vilja ekki nota og sjá sem hvern annan matadors-pening.
Stjórnendur Ísfélagsins haga sér líkt og ALKI í afneitun, það er allt öðrum um að kenna, þeir hafa í 40 ár haft meðvirkni-sjúklinginn sér við hlið (allar ríkistjórnir/almenningur) nú bregður svo við almenningur og ný ríkistjórn reynir að taka sér tak og leiðréttir veiðigjöld á markaðsforsendu, sem note bene er SMÁMÁL á öllum tommustokkum. Ríkistjórnin er ekki að taka kvótakerfið af Ísfélaginu, ekki heldur frjálsa-framsalið, ekki heldur óslitnu virðiskeðjuna eða að fiskurinn sem veiðist verði verðlagður á fiskmarkaði fyrir hæsta verð á hverjum degi, m.ö.o. nýja ríkistjórnin er engu að síður í bataferli og hefur almenning með sér á þessum tímapunkti, en betur má ef duga skal, ef bataferlið á að halda áfram fyrir land og þjóð.
Það vakti athygli mína að stjórnandi Ísfélagsins notar annað orðalag um gengisskráningu krónu, heldur en forstjóri Vinnslustöðvarinnar sem fullyrðir að gengi krónu sé að styrkjast (sem er rangt) hið rétta er að dollar/evra hafa lækkað gagnvart krónunni okkar sem er 143 á móti 1evru og 120 á móti 1dollar sem er uppgjörs gjaldmiðill Ísfélagsins, ef svo skyldi fara að SÍ-stjórinn felldi gengi krónu til jafns við dollar eða evru þá er það HREIN og KLÁR ÁRÁS á lífskjör launafólks/öryrkja/eldriborgara til viðbótar við HRUN-gengi á krónunni, höfum það á tæru. Höfum það svo á tæru sömuleiðis að auðlinda-RENTAN/umframhagnaður í sjávarútvegi er 50-milljarðar +/- á hverju ári síðan 2013 eða eftir að ríkistjórn SDG/BB tók flotgengi úr sambandi og tók upp handstýrða gengisskráningu (dirty-floting) með tilheyrandi uppkaupum á gjaldeyri, gjaldeyrisforðinn er orðinn 1500-1700 milljarðar samkvæmt SÍ-bankanum, þetta er fórnarkostnaðurinn sem kostar að halda úti örgjaldmiðli sem viðskiptalöndin okkar vilja ekki nota og sjá sem hvern annan matadors-pening.
Eini hópur samfélagsins sem nýtur góðs af krónunni okkar eru útflutnings-atvinnugreinarnar sem fá að HIRÐA allan gengishagnaðinn án þess að launafólk/öryrkjar/eldriborgarar fái sanngjarnan hlut í gengishagnaðinum, þessu verður nýja ríkistjórnin að kippa í lag núna strax, ef bataferlið á meðvirknidjöflinum á að halda áfram.