- Advertisement -

„Mikill misskilningur að Íslendingar séu bestir í öllu í sjávarútvegi“

Þingmaðurinn fyrrverandi og nú togaraskipstjóri, Björn Valur Gíslason, skrifaði eftirtektarverð á Facebook.

„Nú er í Noregi verið að hvetja ungt fólk til að sækja um að fá leyfi og þar með aflaheimildir til að stunda sjó í sumar. Sama á við um sérstakar heimildir fyrir ungar konur í því markmiði að fá fleiri konur til starfa í sjávarútvegi. Þarna fyrir utan eru svo sérstakar heimildir til strandveiða, opnar heimildir til að veiða utan kvóta, opna og lokaða hópa og fleira slíkt.

Metverð hefur verið á norskum þorski sem þeir kalla „skrei“ en er í rauninni bara hrygningarþorskur sem hefur verið markaðssettur af krafti með góðum árangri. Knattspyrnumaðurinn Erik Bruut Haaland er andlit norskra sjávarafurða í Asíu og mikið lagt í kynningu á sjávarfangi frá Noregi, bæði af opinberum aðilum sem og af greininni sjálfri. Við gætum svo sannarlega gert betur í þeim efnum á Íslandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…það er engin norsk leið, finnsk leið eða íslensk leið…

Svo var fyrir nokkrum dögum mikil umræða um nýtingu á norskum fiski, gæðum og verðmtætasköpun sem Norðmönnum finnst Íslendingar hafa sinnt mun betur sem sé helsta ástæðan fyrir því að Norðmenn hafi misst markaði fyrir fisk.

Það er mikill misskilningur að Íslendingar séu bestir í öllu í sjávarútvegi, það eru margir að gera það gott annarsstaðar. En við erum góð í sumu, jafnvel betri en aðrir í einhverju t.d. í gæðamálum og verðmætasköpun á fiski og fiskafurðum og höfum oft verið leiðandi í nýsköpun og tækni.

Það er því að mínu mati ekki hægt að tala um eina leið umfram aðra, það er engin norsk leið, finnsk leið eða íslensk leið sem slík. En ef við náum að nýta það besta, hvaðan sem það kemur, gætum við orðið betri en aðrir hvort sem er við að að veiða og vinna fisk ásamt því auka verðmæti sjávarafurða umfram það sem aðrir gera.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: