- Advertisement -

Ábyrgð Kristrúnar eða ábyrgðarleysi

Umræðan: Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstrisins, var í viðtali við Moggann um úrslit kosninganna. Hann sagði meðal annars:

„Þegar allt var á blússandi siglingu hjá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur á fyrra kjörtímabili hennar, þá voru sveitarstjórnarkosningar og Kata var ekkert sérstaklega áberandi þar. Þess vegna var það dálítið óvenjulegt að sjá hvað Kristrún Frostadóttir gekk ákveðið fram. Í mörgum sveitarfélögum er hún bara að pósa á auglýsingamyndum ásamt frambjóðendum, maður tók nú sérstaklega eftir því í Hafnarfirði, þá var hún ásamt manneskju númer tvö en oddvitinn sást hvergi.“

Stefán segir þetta alveg nýtt.

„Það er alveg ljóst að ef þetta hefði gengið upp, ef blaðamannafundurinn fyrir framan Jysk hefði verið algjört „söksess“ og Samfylkingin unnið mikla sigra um helgina, þá væru menn Kristrúnar Frostadóttur að eigna henni þann sigur. Á sama hátt hlýtur hún að axla einhverja ábyrgð á vondri útkomu,“ segir hann.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: