- Advertisement -

Spá að Sjálfstæðsiflokkurinn verði áfram valdalaus í Reykjavík“ Inn og út úr flokknum og alltaf sömu leið

„Einkum þykir veikt að taka 66 ára gamlan fallinn þingmann, Brynjar Níelsson, inn á listann í þriðja sæti.

„Vandræðagangur Sjálfstæðisflokksins í borgarmálum virðist engan enda ætla að taka. Flokkurinn hefur verið í minnihluta frá árinu 2010 og að mestu leyti frá árinu 1994 þegar R-listinn steypti hreiðrinu undan flokknum í Reykjavík.

Hugmyndir voru nú uppi um að gera atlögu að bættum hag flokksins í borginni með því að slíðra sverð og reyna að stilla upp samstilltum lista sem gæti höfðað til kjósenda. Flokkurinn forðaðist prófkjör og uppstillingarnefnd reyndust vera mislagðar hendur við val á listann.

Mikil orka fór í að koma sitjandi borgarfulltrúum og varaborgarfulltrúum út af listanum með þeim afleiðingum að þrír þeirra hafa nú gengið í Miðflokkinn og kvatt Sjálfstæðisflokkinn í illu. Flokkurinn hefur verið óstjórntækur um árabil vegna innri ágreinings. Á því kjörtímabili sem nú er að ljúka er talið að hann hafi verið þríklofinn. Klofningsfólkinu hefur annað hvort verið ýtt út af listanum eða ýtt langt niður. Fráleitt er að halda því fram að vinsemd og friður ríki varðandi þær breytingar sem gerðar hafa verið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Orðið á götunni er að uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins hafi ekki náð miklum árangri við mótun nýja listans. Margir telja að fyrst og fremst hefði átt að skipta um oddvita en flokkurinn tapaði tveimur borgarfulltrúum í síðustu kosningum þegar Hildur Björnsdóttir leiddi listann í fyrra skiptið. Henni hefur ekki tekist að koma flokknum til valda né að halda hópi borgarfulltrúa saman. Val á fulltrúum í efstu sætin núna er umdeilt. Einkum þykir veikt að taka 66 ára gamlan fallinn þingmann, Brynjar Níelsson, inn á listann í þriðja sæti – „gamalt vín á nýjum belgjum,“ en í því felst ekkert nýjabrum.“

Hér er stokkið yfir stuttan kafla og við lendun næst í öðru sæti listans Sjálfstæðisflokksins:

„Bjarni Guðjónsson af Akranesi er vel þekktur í knattspyrnuhreyfingunni en trúlega ekki mikið fyrir utan hana.

Flest þykir benda til þess að flokkurinn verði áfram óstjórntækur í minnihluta og þar með valdalaus í borginni sem vitanlega er óþolandi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem átti sér lengst af glæsilegan feril í borgarmálum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: