- Advertisement -

Segir Guðrúnu“ ösla um í drullupolli mannhaturs“

„En fullorðið fólk þarf fyrst að læra það sem það vill kenna börnum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir.

Stjórnmál: Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skrifar ósátt með störf Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins:

„Örvænting formanns Sjálfstæðisflokksins yfir því að vera algjörlega misheppnaður stjórnmálamaður er yfirþyrmandi. Hún veit að hún hefur úr því sem næst engu að moða, er ekki sterkur leiðtogi heldur leiðtoginn sem enginn vill leiða – tími hennar er ekki liðinn, hann kom aldrei – og grípur því til þess örþrifaráðs að ösla um í drullupolli mannhaturs og öfga-hyggju þeirra sem kynda öll ófriðarbál en láta eins og afleiðingar vestrænnar yfirburðahyggju og heimsvaldastefnu, fólk sem hrekst á flótta, komi þeim ekkert við. Úr drullupollinum reynir hún að ata þá Íslendinga aur sem fóru og björguðu fólki undan ísraelsku morðingjunum – á meðan að flokksbræður hennar höfðu það eitt til málanna að leggja í miðju þjóðarmorði að greiðslur til Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Palestínu (UNRWA) yrðu stöðvaðar svo ekki væri hægt að reka skóla fyrir palestínsk börn, enda þau öll hryðjuverkamenn.

Í Morgunblaðinu í dag röflar formaðurinn um að íslenskir ríkisborgarar hafi greitt landamæravörðum mútur til að koma þjáðu og ofsóttu fólki frá Gaza yfir til Egyptalands – ræðst að samlöndum sínum sem gerðu það sem Kristur boðar, gerðust Samverjar vorra daga, meðan að hún sjálf er verri en nokkur Levíti – allt til að kreista út nokkur atkvæði frá kjósendum sem vilja trúa því að brúnt fólk beri ábyrgð á afleiðingum siðblindu og svívirðu útkynjaðs kapítalisma og heimsvaldastefnu hnignaðra vesturlanda. Formaðurinn myndi eflaust reyna að halda því fram að Samverjinn hafi mútað gistihúsaeigandanum þegar hann greiddi honum fyrir umönnun mannsins sem hafði verið barinn og rændur og skilinn eftir til að deyja.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Með fréttinni um botnhegðun íslenska hægrisins…

Með fréttinni um botnhegðun íslenska hægrisins, sem reynir að fela eigið getu og sjarma-leysi með röfli og rasisma, lætur Mogginn af einhverjum ástæðum fylgja mynd sem tekin var árið 2014 þegar mótmælt var við ameríska sendiráðið á fögrum sumardegi, vegna þess að ísraelsku morðingjarnir voru, með stuðningi Bandaríkjanna, enn á ný að slátra saklausu fólki á Gaza. Þar var mér boðið að halda ræðu, sem ég þakklát þáði. Ég hef ekki geymt neitt af því sem ég hef skrifað, það hverfur allt út á tímans gráa rökkurveg, en ég man að ég biðlaði til Obama um að sýna mennsku og vera ekki eins og drullusokkurinn fyrirrennari hans í embætti forseta. Á myndinni sést ég ásamt Þorleifi Gunnlaugssyni og Salman Tamimi, stofnanda Félagsins Ísland-Palestína, sem nú er látinn, blessuð sé minning hans – hann ber fána Palestínu. Guð einn veit hvað hann hugsaði þennan sólríka dag í Reykjavík, fjarri heimahögum, þeirri fögru hlíð, hernuminni síðan 1948, yfirgefinni af alþjóðasamfélaginu, fastri á Via Dolorosa áratug eftir áratug og engin hjálp í sjónmáli. Ég get ekki þóst vita það – það eina sem ég get gert er að muna kennslustund Jesú sem enn lifir 2000 árum eftir að hún fór fram; mennska birtist í verki; hún sér þann sem þjáist, burtséð frá öllu; þjóðerni, uppruna, kynþætti – og þráir að lina þjáningarnar.

Sjálfstæðisflokkurinn vill að kristinfræðikennsla verði tekin upp að nýju í skólum landsins – ég geri ekki athugasemdir við það. En fullorðið fólk þarf fyrst að læra það sem það vill kenna börnum – formaður Sjálfstæðisflokksins ætti að nota páska-hátíðina til að koma sér upp úr drullusvaðinu sem hún er sokkin í og athuga hvort að hún getur fundið pláss fyrir boðskap Krists í hjarta sínu. Þá tækist henni kannski að lina eigin vanlíðan yfir því að vera svona ótrúlega óvinsæl og gæti þá mögulega snúið af vegi villutrúar og grimmdar og byrjað að ganga veg náungakærleika og samhyggðar með mannfólki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: