Stjórnmál: Þórður Snær Júlíusson hefur skrifað nýja grein á Kjarnyrt. Upphaf greinarinnar má lesa hér og síðan er tengill á alla greinina:
„Það geisa tvenns konar stríð á pólitískum vígvelli Íslands, þar sem ofsi og ábyrgð takast á. Annað snýst um að etja stéttum saman í baráttu um sneiðar af efnahagslegu kökunni og hitt að etja hópum saman í innfluttum átökum um gildi, siðferði og menningu. Alls konar vopnum er beitt, til dæmis efnahagslegri þjóðernishyggju, fullyrðingum um öryggisógn sem eiga sér oftast nær engar stoðir í raunveruleikanum og mikilli dreifingu á röngum eða villandi upplýsingum. Síðasta vika hefur sýnt það svart á hvítu hvar íslensku hægriflokkarnir og fjölmiðlarnir þeirra hafa grafið sínar skotgrafir í þessu stríði og hvernig þeir ætla að heyja það.“