- Advertisement -

Vinstrið bætir hlutfallslega mestu við sig

Kosningar: Gunnar Smári skrifaði:

Samkvæmt þessari könnun eru síðustu menn inn áttundi maður Sjálfstæðisflokks og fimmti maður Samfylkingar en næstu menn inn annar maður Miðflokks og fjórði maður Vinstrisins.

Könnun Maskínu er nokkuð ólík könnun Gallup og bendir það annað hvort til mikillar hreyfingar á fylgi eða að könnunarfyrirtæki eiga í erfiðleikum með að festa hönd á stöðunni. Samfylking er t.d. með 4,4 prósenta minna fylgi hjá Maskínu en Gallup, Miðflokkur 3,3 prósenta og Sjálfstæðisflokkur 2,2 prósenta á meðan Viðreisn er með 3,5 prósentum meira fylgi hjá Maskínu en Gallup og Framsókn 2,8 prósentum.

En ef Maskína er með puttann á púlsinum þá er kominn tími til að allir hægri miðlarnir og hlaðvörpin hætti að tala um vöxt Miðflokksins. Miðflokkurinn er þarna með 6,7% á meðan samanlagt fylgi flokkanna vinstra megin við Samfylkingu (Vinstrið, Píratar og Sósíalistaflokkurinn) eru með 23,2%.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta er reyndar saman fylgi og Píratar, Sósíalistaflokkurinn (með Sönnu) og Vg fengu 2022 (23,3%). Ef þetta væri eitt framboð væri það næst stærsti flokkurinn í Reykjavík og fengi sex borgarfulltrúa (Sjálfstæðisflokkur myndi missa einn). Þetta framboð og Samfylking væru með ellefu fulltrúa, vantaði einn upp á meirihluta. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Miðflokkur og Framsókn hefðu 12 fulltrúa samanlagt og gætu myndað ansi skrítinn meirihluta.

Annars hefur sveiflan verið þessi frá síðustu Maskínukönnun:

Flokkar í sókn:

  • Vinstrið: +2,6%
  • Sjálfstæðisflokkur: +2,5%
  • Framsókn: +1,8%

Flokkar sem standa i stað:

  • Viðreisn: +0,9%
  • Flokkur fólksins: 0%
  • Sósíalistaflokkurinn: -0,1%
  • Píratar: -0,3%

Flokkar sem tapa fylgi:

  • Samfylkingin: -3,0%
  • Miðflokkurinn: -3,3%

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: