- Advertisement -

Ætlar Kristrún Frostadóttir að bregðast trausti þjóðarinnar?

„MEÐ LOKUÐ AUGUN OG ÓTTA VIÐ FÁMENNINGSVELDIÐ.“

Vigfús Ásbjörnsson

Sjávarútvegur: Vigfús Ásbjörnsson skrifaði:

„Það hefur verið furðulegt að fylgjast með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Hönnu Katrínu Friðriksson síðustu vikurnar í vetur. Hvernig þær hafa kosið að horfa á arðrán íslenskrar þjóðar sem framið er dag hvern hér á landi þegar undirverðlögðum fiski er landað hér í höfnum landsins í þúsundum tonna talið í boði þessarar ríkistjórnar MEÐ LOKUÐ AUGUN OG ÓTTA VIÐ FÁMENNINGSVELDIÐ.

Milliverðlagning/undirverðlagning er auðvitað ekkert annað en þjófnaður og arðrán  af hlut þjóðarinnar og rentu úr sameiginlegum fiskveiðiauðlindum okkar Íslendinga og arðránið er í boði þeirra ríkistjórnar sem situr hverju sinni og þar með talið forsætisráðherrans sem nú er Kristrún Frostadóttir.

Já, akkúrat þeim milljörðum sem vantar…

Þó nýlegustu dæmin og kannski þau skýrustu séu á undirverðlagningu á loðnu um hundruð prósenta þá nær undirverlagningin til allra fisktegunda og hún hefur verið stunduð áratugum saman og þjóðin hefur orðið af hundruðum milljarða í gegnum áratugina.

Já, akkúrat þeim milljörðum sem vantar inn í samfélagið til þess að geta kallað okkur ríka þjóð eða velferðarsamfélag. Sveitarfélög eru rekin á horriminni ár eftir ár og safna sum hver skuldum sem aldrei fyrr eins og t.d Reykjarvíkurborg og mörg mörg fleiri. Innviðir eru að grotna niður og sjómennirnir sem er okkar mikilvægasta stétt  frá upphafi landnáms er hlunnfarnir áratugum saman og eru núna brotnir, kúgaðir og okkar hræddasta stétt ásamt blaðamönnunum okkar og allir vita við hvað þeir eru hræddir við.

Ef það er eitthvað eitt mikilvægt sem þessi ríkistjórn gæti gert fyrir þjóð sína á kjörtímabilinu þá er það að stöðva þetta með öllum ráðum og dáðum og rétta hlut þjóðarinnar í þessum málum. Allt hitt sem þið eruð að gera sem ríkistjórn skiptir svo litlu máli í samanburði við þetta mál og er í raun bara tilraun ykkar í að plástra afleiðingar arðránsins og ekkert annað.

Afleiðingarlækningar eru ekki til. Það þarf að fara í rót vandans til að lækna allt hitt.  En hvað er Kristrún Frostadóttir að gera í þessum málum? Hún er að gera ekki neitt og ekki heldur sjávarútvegsráðherrann okkar Hanna Katrín Friðriksson sem í raun gerir lítið sem ekki neitt sem skiptir máli.

Það væri hægt að grafa jafnvel mörg jarðgöng…

Þær hafa að mér vitandi ekki svo mikið sem ljáð máls á þessu gríðarlega alvarlega máli sem er rót ástandsins hér á landi og allar staðreyndir liggja fyrir um og hafa gert um áratuga skeið. Það þarf ekki lengur að tala um þetta, eða skipa fleiri nefndir. Þetta liggur allt fyrir  og er allt í boði ríkistjórnar Íslendinga í dag! 

Það væri hægt að grafa jafnvel mörg jarðgöng á ári ef arðránið yrði stöðvað. Jafnvel bæði til Vestmannaeyja og hringgöng austur á landi fyrir utan auðvitað að hægt væri að sinna viðhaldi vega með mannsæmandi hætti. Hægt væri að byggja hér hjúkrunarheimili og skóla sem aldrei fyrr í sveitarfélögum landsins auk þess sem nýr landspítali væri hér fyrir löngu risinn.Hægt væri að lækka álögur á venjulega íbúa í þessu landi í stað þess að hækka þær ár frá ári og svo framvegis.

Já og síðast en ekki síst myndu útgerðarfélögin halda áfram að dafna sem aldrei fyrr þó svo þeir þyrftu að miða skattstofna sína og laun til sjómanna við raunveruleg fiskverð þegar sótt er í eigur þjóðarinnar. Slík eru verðmætin í sjávarútvegsauðlindum okkar.

Innviðaskuldin yrði greidd upp á nokkrum árum og rekstur samfélagsins kæmist í algert jafnvægi.  Já Kristrún Frostadóttir, það þarf að reka hér velferðarsamfélag í þágu fólksins í landinu og þetta velferðarsamfélag á að vera kostað af auðlindum þess en ekki með aukinni skattlagningu á fólkið í þessu landi.

Kristrún Frostadóttir, með því að horfa með blinda auganu og ótta við viðbrögð fámenningsveldisins á milliverðlagningu/undirverðlagningu á fiski og gera ekki neitt eins og þú ert að gera  verður þetta samfélag aldrei raunverulegt velferðarsamfélag og þá ert þú að bregðast því trausti  sem þjóðin hefur sýnt þér. Ég trúi ekki fyrr en ég sé það að þú ætlir að verða sá forsætisráðherra sem bregst því trausti sem þjóðin hefur sýnt þér og horfa á arðrán þjóðarinnar í beinni útsetningu dag hvern án þess að stöðva það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: