„Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti.“
Össur Skarphéðinsson.
Stjórnmál: Össur Skarphéðinsson skrifar grein á Facebook vegna furðu greinar Jóns Péturs Zimsen Sjálfstæðisflokki. JPZ hefur sett í bakkgírinn og vonast til að sér verði fyrirgefin vegna greinarinnar. Össur skriifaði:
„Jón Pétur Ziemsen, hinn gagnmerki þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem frægur varð af endemum í málþófinu á Alþingi með makalausri ræðu um plasttappa, er enn að gera garðinn frægan.
Í nýlegri færslu á X segir hann að ungar konur eigi við vonda og versnandi geðheilsu að stríða. Í beinu framhaldi vekur hann athygli á því að nú hafi konum um hríð fjölgað verulega í flestum stjórnunarstöðum samfélagsins og í háskólanámi og séu nú í miklum meirihluta háskólanema.

Svo bætir þingskörungurinn við íhaldseðlinu trúr: „Við bælum ekki niður árþúsunda náttúruval vegna skoðana framsækinna háskólamanna af hugvísindadeildum.“ Vitaskuld tekur hann aðspurður fram að með þessu sé hann auðvitað alls ekki að leggja til að kynjahlutverkin verði færð aftur um hundrað ár.
Varla er þó hægt að túlka þetta öðru vísi en svo að þingmaðurinn sé þeirrar skoðunar að konur séu erfðafræðilega miður hæfar til að gegna stjórnunarstörfum og að menntun þeirra kunni að eiga sök á versnandi geðheilsu. Þetta eru semsagt skilaboð Sjálfstæðisflokksins til ungra kvenna á fyrsta fjórðungi 21. aldarinnar.
Rifjast þá upp ummæli þekkts leiðtoga úr skyldum flokki sem af öðru tilefni lét svo um mælt að staða konunnar væri á bakvið eldavélina!
Er nema von að Sjálfstæðisflokkurinn visni einsog vorblóm í hreti og að væn kona einsog Þórdís Kolbrún taki sprettinn úr Sjálfstæðisflokknum yfir í viðeisnarfaðm Þorgerðar Katrínar eftir lengstu umsókn um sendiherrastöðu sem sögur fara af?“
