Kosningar: Sara Stef Hildar skrifar:
„Það er einhver undiralda. Fólk vill Sönnu sem borgarstjóra. Muniði Skaupið: „Bíddu? Er Sanna ekki borgarstjóri?“. Ég vil Sönnu sem borgastjóra enda lítur hún ekki á borgina sem fyrirtæki, heldur samfélag þar sem stjórn borgarinnar snýst um að „tryggja jafnrétti og velferð allra borgarbúa á ábyrgan og sjálfbæran hátt,“ eins og Alfreð Sturla Böðvarsson segir í grein sinni í dag. Mamdani og Sanna, sem eru af sömu kynslóð – bæði 34 ára, leggja áherslu á sanngjarna skattlagningu og krefjast þess að við hugsum um húsnæði sem heimili fólks og mannréttindi – ekki og sem markaðsvöru sem örfáir mega græða á.
Kjósum sanngirni – kjósum Sönnu.“