- Advertisement -

Allar aðildarþjóðir ESB eru fullvalda

Stjórnmál: Jóhann Hauksson blaðamaður skrifaði:

Gremjudeildir Miðflokks- og Sjálfstæðismanna reka nú botnlausan áróður gegn Evrópusambandinu, sem minnir á umsáturs- og falskenningar Halls Hallssonar og Styrmis Gunnarssonar á sínum tíma. Ánauð og tortíming. Fullveldisafsal og auðlindatap. Allt eru þetta áróður, getgátur og lygar. En þess utan ótímabærar. Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar snýst ekkert um samning sem Ísland kann að gera við ESB í fyllingu tímans. Atkvæðagreiðslan er partur af sjálfsögðu lýðræði þar sem þjóðin fær að taka ákvörðun um það HVORT TAKA EIGI UPP VIÐRÆÐUR OG SAMNINGSGERÐ Á NÝ. Og náist samningur yrði sá samningur BORINN AFTUR UNDIR ÞJÓÐINA.

Norðmenn gerðu samning, ræddu hann í kosningabaráttu 1994 um aðild að ESB. NEI sögðu 52,2%, JÁ sögðu 47,8%. Þar var um að ræða þjóðaraatkvæðagreiðslu Norðmanna um aðild að ESB sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og allt þeirra gremjulega og popúlíska hægralið vill hafa af íslensku þjóðinni.

Já og talandi um fullveldi. Allar aðildarþjóðir ESB eru fullvalda, bæði fyrir og eftir aðild. Fullveldi Breta birtist meðal annars í því að þjóðin fékk að kjósa um að ganga úr ESB (Brexit) og sú varð raunin. Það er svo önnur saga að þrír af hverjum fjórum kjósendum í Bretlandi vilja nú sækja um aðild á ný.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…gerir Ísland vegna þess að það er fullvalda og verður það.

Ísland gerir EFTA-samning, NATO-samning og aðra fjölþjóðlega samninga ef þaða telur að slíkir samningar séu gagnlegir fyrir þjóðina. Aðild Íslands að mannréttindadómstólnum hefur til dæmis bætt réttarfar á Íslandi og losað það ögn undan sérhagsmunagæslu frekra íslenskra karla.

Samninga yfir landamæri – milli landa – gerir Ísland vegna þess að það er fullvalda og verður það. Svokallaðir sérfræðingar í lögum og þjóðarrétti hafa hártogað þetta öll þau þrjátíu ár eða svo sem deilt hefur verið á Íslandi um aðild að ESB.

Gangi Ísland í ESB að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu getur það ákveðið í síðari tímapunkti og í krafti síns fullveldis að ganga úr ESB ef það þykir henta.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: