- Advertisement -

Ásdís vill ekki „gefa“ lóð fyrir slökkvistöð

Umræðan: Jónas Már Torfason, verðandi leiðtogi Samfylkingarinnar í Kópavogi, skrifaði:

„Ef bæjarstjóri vill að það rísi slökkvistöð í efri byggðum Kópavogs er henni í lófa lagið að láta af fordæmislausri kröfu sinni um að slökkviliðið greiði byggingarréttargjald fyrir lóð undir slökkvistöðina í Tónahvarfi. Staðreyndin er sú að hún og pólitísk forysta bæjarins hafa valdið því að málið hefur verið stopp í eitt og hálft ár vegna þessarar kröfu bæjarstjóra, sem forgangsraðar skammtímaniðurstöðum í bókhaldi bæjarins fram fyrir raunverulega þjónustu og öryggi íbúa efri byggðar Kópavogs. Allt er þetta rakið í opinberum fundargerðum, allt frá því að Ásdís setti fyrst fram kröfuna um greiðslu byggingarréttargjalds fyrir einu og hálfu ári síðan. Það hefur lengi staðið til að þessi slökkviliðsstöð myndi rísa, en framkvæmdunum hefur verið haldið gíslingu vegna framferði meirihlutans og tafið málið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í viðtali við Vísi gerir bæjarstjórinn lítið úr þessu og vísar einungis til þess að „umræður hafi átt sér stað“ um gjaldið en að það hafi ekkert að gera með þessa slökkvistöð. Það er spurning hvort Ásdís láti ekki vita af þessum misskilningi á næsta stjórnarfundi slökkviliðsins, að það standi ekki á bænum að framkvæmdir hefjist óháð greiðslu byggingarréttargjaldsins. Það væri mjög til bóta að bæjarstjóri bakkaði með þessa kröfu sína. Öryggisinnviðir í efri byggðum Kópavogs eiga ekki að standa stopp vegna prútts um gjaldtöku, líkt og reyndin hefur verið í of langan tíma.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: