- Advertisement -

Frumvarpið gegnsýrt af sérhagsmunagæslu

Náttúran: Icelandic Wildlife Fund um frumvarp Hönnu Katrínar:

Hanna Katrín Friðriksson í önnum í sal Alþingis.

„Atvinnuvegaráðherra lagði í vikunni fram frumvarp sitt til laga um lagareldi. Því miður hafa nánast engar breytingar verið gerðar til bóta frá afar vondum drögum sem ráðherra hafði kynnt áður.

Í umræðum um frumvarpið hlýjaði um hjartaræturnar að nokkrir þingmenn komu í ræðustól, spurðu gagnrýninna spurninga og lýstu áhyggjum yfir því að frumvarpið veitti ekki villta laxinum okkar nauðsynlega vernd og þar af leiðandi ekki heldur hagsmunum um 2.500 landeigenda, bænda og fjölskyldna þeirra, sem byggja lífsafkomu sína að stóru leyti á hlunnindum af sjálfbærum stangveiðum á laxi.

Þetta voru þingmennirnir Ingibjörg Davíðsdóttir og Snorri Másson úr Miðflokknum, ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni og Jóni Pétri Zimsen úr Sjálfstæðisflokknum. Við viljum þakka þeim sérstaklega fyrir mikilvægt aðhald.

Mikið skortir upp á að svo sé í þessu frumvarpi.

Grundvallaratriði í lagafrumvarpi um lagareldi hlýtur að þurfa að vera að ganga svo um hnútana að þeir sem stunda sjókvíaeldi eyðileggi með því ekki verðmæti og lífsafkomu annarra.

Mikið skortir upp á að svo sé í þessu frumvarpi sem ríkisstjórnin öll hefur nú gert að sínu. Að stóru leyti er texti þess einsog hann hafi verið skrifaður af lögfræðingum sjókvíeldisfyrirtækjanna sjálfra.

Þetta er frumvarp sem er gegnsýrt af sérhagsmunagæslu í þágu þeirra fjögurra fyrirtækja sem stunda laxeldi í opnum sjókvíum í fjörðum landsins.

Ekkert tillit er tekið til fjölda bændafjölskylda sem hafa kynslóð eftir kynslóð staðið vörð um villta laxinn. Þvert á móti er í frumvarpinu gerð tillaga að því að láta þessar fjölskyldur sæta íþyngjandi aðgerðum til að þjóna þessum stóriðjufyrirtækjum sem eru skráð í kauphöllinni í Osló.

Við höfum enga trú á því að meirihluti sé á Alþingi fyrir þeim ákvæðum og fleirum í þessu hættulega frumvarpi.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: