Kosningar: Vinstri flokkarnir náðu engan veginn þeim árangri sem þeir stefndu að í kosningunum.
Silja Sóley Birgisdóttir, sem vermdi fyrsta sæti Sósíalistadlokksins sagði:
„Ég held að það sé búin að vera hægri sveifla víðs vegar, við sjáum þetta líka alþjóðlega. Það er margt sem spilar saman en mér líst ekkert á blikuna.“
„Ég held að þessar kosningar eigi eftir að marka leiðina að því. Ég veit ekki hvað verður en ég held að félagshyggjufólk og umhverfisfólk þurfi að sameinast og ég held að þetta sé vísir að því samtali framvegis,“ sagði Líf Magneudóttir, sem var í 2. sæti Vinstrisins.
Hvaða tilfinningu ferðu með inn í nóttina?
„Ég er náttúrulega brjáluð, sko.“
Viðtölin eru fengin af ruv.is.