„Og nú á að beita því aftur af hörku í gegnum sömu fjölmiðla. Til hvers? Til að heimilin geti ekki létt af sér 100 milljarða vaxtaoki.“
Dagur B. Eggertsson.
Alþingi: Dagur B. Eggertsson flutti mjög eftirtektarverða ræðu á Alþingi fyrr í dag.

„Okkar góða Ísland skiptist eiginlega í tvö lönd. Það er evruland og krónuland. Stóru útflutningsfyrirtækin okkar, nánast öll stærstu fyrirtæki landsins, gera upp í erlendri mynt, flest í evrum, einhver í dollurum, og taka lán í sömu mynt. Heimilin sitja eftir í krónunni, borga 100 milljarða á ári í hærri vexti fyrir vikið og þau sem komast ekki inn á húsnæðismarkaðinn eru sannarlega í krónulandi. Á síðustu árum höfum við horft upp á það að stórútgerðin hefur í krafti arðs af þjóðarauðlind ekki bara keypt upp gríðarlega mörg fyrirtæki í sjávarútvegi, þannig að þar hefur samþjöppun orðið, heldur gríðarlega mörg fyrirtæki í öðrum atvinnurekstri. Samþjöppun í þessu fákeppnislandi er það sem við þurftum síst á að halda. Útgerðin hefur líka keypt sig inn í fjölmiðla og sett peninga annað til að hafa áhrif.
Það á að verja þessa sérstöðu.
Við fundum það sterkt hér í þessu húsi en líka um allt land, í þeirri baráttu sem háð var í fyrra fyrir eðlilegri leiðréttingu á veiðigjöldum, til að þjóðin fengi arð af auðlindum, að þessu fjárhagslega afli var beitt af hörku.
Og nú á að beita því aftur af hörku í gegnum sömu fjölmiðla. Til hvers? Til að heimilin geti ekki létt af sér 100 milljarða vaxtaoki. Til þess að önnur fyrirtæki, lítil og meðalstór, geti ekki fengið að keppa á jafnréttisgrunni. Það á að verja þessa sérstöðu. Það á að verja þessa sérhagsmuni gegn almannahagsmunum.“