
Sigurjón Þórðarson alþingismaður:
Það er engu líkara en að það sé búið að ýta til hliðar nýtingarsjónarmiðum sem byggjast á mjög varfærnu mati á veiðiþoli stofnsins og ráðandi séu einhver allt önnur sjónarmið.
Það er snúið að fá einhvern botn í það hvers vegna í ósköpunum Hafró leggur til gríðarlegan niðurskurð á veiðum á hrefnu eða 23%, þrátt fyrir að það komi fram að nýlegar talningar “ benda til töluverða aukningu fjölda hrefna á íslenska landgrunnsvæðinu“ og ekki hafa farið fram veiðar á hrefnu á síðustu árum.
Sama má segja um hátt í 30% lækkun á ráðlagðri veiði á langreyð en dýrið hefur ekki verið veitt að neinu marki sl. 3 ár.
Það er engu líkara en að það sé búið að ýta til hliðar nýtingarsjónarmiðum sem byggjast á mjög varfærnu mati á veiðiþoli stofnsins og ráðandi séu einhver allt önnur sjónarmið.
Eftir því sem ég kemst næst byggist ráðlagður afli fyrst og fremst á talningu, en ekki vexti holdafari né þungunartíðni. Allir þessir þættir gefa ekki síður til kynna upplýsingar um þéttleika og veiðiþol stofnsins en talningar sem eru háðar veðri og þjálfun talningamanna.