Facebook: Jón Trausti Reynisson skrifaði:
Logi Einarsson menningarmálaráðherra kynnti í dag aðgerðaráætlun í málefnum fjölmiðla. Ljóst er að spretthópur ráðuneytisins hefur unnið hratt og vandað sig við vinnuna. Það er ekki sjálfsagt að fjölmiðlar fái styrki og margt nýtt og snjallt í áformunum.
Tvennt vantar ennþá í áætlunina sem hefði gert öflugri og óháðri blaðamennsku betur kleift að þrífast á Íslandi utan ríkisins.
- 1. Ekki er brugðist við samkeppnishindrunum á fjölmiðlamarkaði. Hagsmunaaðilar og -samtök niðurgreiða fjölmiðla, sem skerðir og skekkir samkeppnisstöðu og lífvænleika óháðra fjölmiðla. Niðurgreiddir miðlar fá ríkisstyrki alveg eins og þeir sem þurfa að standa á eigin fótum. Þar á meðal Morgunblaðið, sem fær tæpa milljón á dag frá eigendum sínum, aðallega útgerðarmönnum, sem hafa greitt upp tæplega þriggja milljarða tap að núvirði á áratug. Bændablaðið er beinlínis rekið af hagsmunasamtökum sem fá ríkisfjármögnun. Þetta eru fínir fjölmiðlar, en í engum öðrum geira eru slíkar samkeppnishindranir látnar viðgangast. Þetta má ekki einu sinni í enska boltanum.
- 2. Ekki er með neinum hætti ýtt undir áskriftir almennings að fréttamiðlum, til dæmis með endurgreiðslu áskrifta upp að einhverju viðráðanlegu þaki í samræmi við almannaheillafélög, sem hefði virkað til þess að styðja við ítarlegri og vandaðri blaðamennsku, andspænis smellifréttum sem byggja oftast á afritun annars efnis.
Ísland er eitt fámennasta fullvalda ríki heims.
Auglýsingamódelið dæmir fréttamiðla til þess að hlaupa á hamstrahjóli afþreyingar og afritunar í samkeppni við erlenda samfélagsmiðlarisa og aðrar ríkisreknar upplýsingaveitur sem nýta þá.
Fyrri aðgerðir í fjölmiðlamálum hafa haft sem frumskilyrði að tryggja fjölbreytni og fjölræði eða valddreifingu. Í þetta sinn virðist meira en áður horft til þess að styrkja og styggja ekki Sýn, Árvakur og Ríkisútvarpið. Það er pólitískt skiljanlegt eftir hörð viðbrögð við því þegar þak styrkja var sett við 22 prósent í stað 25 prósent af heildarupphæðinni í haust, við upphrópanir stjórnarandstöðu og kröfur Sýnar og Árvakurs um að fá ekki minna en fjórðung hvort, þótt munurinn væri smávægilegur.
Ísland er eitt fámennasta fullvalda ríki heims og Íslendingar hér á landi eru færri en íbúar í Wuppertal eða Stoke.
Einn helsti tilgangur fjölmiðlastefnu ætti að vera að ýta undir frumvinnslu ekki síður en miðlun.
Og í fjölmiðlastefnu ætti um leið að horfa til þess að verja valddreifingu og forðast fáræði.