Umræðan: Brynjar Níelsson skrifaði:
„Til vera góður lygalaupur þarf ákveðna færni og útsjónarsemi. Lygalaupar þurfa að forðast að ljúga þegar þeir eru svekktir og argir því það verður aldrei trúverðug lygi. Þá skiptir staður og stund miklu máli. Að hagræða sannleikanum til að gera lítið úr nýlátnum manni er bæði klaufalegt og ekki mjög flatterandi. Betra að bíða þar til allir sem voru á sviðinu eru einnig farnir yfir móðuna miklu.
Með þrotlausri ástundum áratugum saman hef ég náð talsverði færni í þessari listgrein og er nú svo komið að ég er landsþekktur lygalaupur. Það sama verður ekki sagt um fyrrverandi borgarstjóra og þingmann Samfylkingarinnar. Hann er óttalegur klaufi í þessum efnum þótt ástundun hafi verið talsverð. Þar sem ég er orðinn starfsmaður á þinginu tímabundið er ég að skipuleggja námskeið fyrir stjórnarþingmenn í trúverðugum lygum án endurgjalds.“