- Advertisement -

Brynjar skvettir úr fötunni

„Ef ég á afturkvæmt í stjórnmál verður það verður helsta baráttumál mitt að draga úr eða fella niður fjárframlög til fjölmiðla og ekki síður til stjórnmálaflokka og annarra pólitískra hagsmunasamtaka úti bæ.“

Brynjar Níelsson.

Umræðan: Brynjar Níelsson agnúast út í ríkisstyrki til fjölmiðla sem og stjórnmálaflokka:

„Það virðist búið að selja skattgreiðendum að þeir verði að greiða 10 milljarða ári til fjölmiðla annars sé lýðræðið í hættu. Ég er ekki viss um að lýðræðið sé í hættu þótt þeir fjármagni ekki Orðið á götunni í DV þar sem húskarlinn og auðmaðurinn skiptast á að lýsa andúð sinni á Sjálfstæðisflokknum og bera fyrir sig ónafngreint fólk af götunni. Skattgreiðendur gætu alveg eins fjármagnað lygi mína á fésbókinni enda örugglega meira lesin og nær sannleikanum ef eitthvað er. Hef alveg skilning á því að menn festist í harðlífi og vansæld þegar þeim er hafnað af eigin flokki en við skattgreiðendur eigum að hjálpa þeim með öðru hætti en peningagjöfum.

Ef ég á afturkvæmt í stjórnmál verður það verður helsta baráttumál mitt að draga úr eða fella niður fjárframlög til fjölmiðla og ekki síður til stjórnmálaflokka og annarra pólitískra hagsmunasamtaka úti bæ. Þessi fjárframlög eru örugglega vel á annan tug milljarða á ári sem ég get hugsað mér að nýta með skynsamlegri hætti, t.d að bæta þjónustu eða minnka álögur á landsmenn. Sjálfbærni og fara vel með peninga annarra er alltaf mikilvægt. Það verða aðrir að berjast fyrir lúxussplæsi eftir geðþótta af því að það er nóg til eða tekjustofnar vannýttir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þessi sjónarmið mín munu örugglega heita hjá ríkisstyrktu miðlunum þjóðernis popúlismi eða öfga hægri mennska. Ég lifi með því.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: