Ég vona að mér fyrirgefist að segja það en mér fannst umræðurnar einkennast allt of mikið af gamaldags íslenskri frekju gömlu valdaflokkanna.
Dagur B. Eggertsson.
Alþingi: Dagur B. Eggertsson steig nokkrum sinnum í ræðustól Alþingis í dag. Hér á eftir fer ræða hans undir störfum þingsins:
„Ég lét mig dreyma um að flokkarnir á Alþingi myndu lyfta sér upp úr skotgröfunum og styðja þá eðlilegu hugmynd að nú myndi þjóðin eiga leik um næstu skref í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þeir höfðu jú allir lofað því. Þess í stað horfði þjóðin upp á að þrasað var hér í þingsal um stafsetningu, forms- og aukaatriði í stað þess að ræða stóru myndina, prinsippin og þær gríðarlegu breytingar sem eru að verða í heiminum. Það er einmitt við þessum breytingum sem við þurfum að bregðast til að gæta þjóðarhagsmuna.
Ég vona að mér fyrirgefist að segja það en mér fannst umræðurnar einkennast allt of mikið af gamaldags íslenskri frekju gömlu valdaflokkanna, sem hatast við þá hugmynd að almenningur komi að málum þegar þeir standa vörð um fákeppni, samkeppnisforskot og gróða þeirra sem hagnast af háum vöxtum. Já, það er nefnilega þannig að þegar við greiðum háa vexti þá er einhver sem hagnast. Einn af kostulegum hápunktum gærdagsins var einmitt þegar Miðflokkurinn, á FM957, reyndist hatast svo mikið við Evrópusambandið að hann var farinn að tala gegn lægri vöxtum, einu helsta hagsmunamáli almennings og fyrirtækja. Þetta finnst mér afhjúpandi. Það fer nefnilega lítið fyrir efnislegum andmælum. Samningur við Evrópusambandið virðist vera eitthvað hættulegt sem almenningi er ekki treystandi til að leggja mat á. Þetta er bók sem við megum ekki lesa. Þetta er ferðalag sem við megum ekki fara í.
Þetta eru upplýsingar sem við megum ekki sjá. Gömlu valdaflokkarnir vilja hafa vit fyrir þjóðinni einu sinni enn, gera grýlu úr ESB og hræða fólk frá því að klára og sjá þessa samninga.“