Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrum forsætisráðherra, skrifaði eftirfarandi á Facebook:
„Við Íslendingar erum mjög háðir orkuöryggi og í ljósi landfræðilegrar legu okkar er mikilvægt að tryggja að eldsneytisbirgðir standist raunverulegar öryggiskröfur.
Óróleiki í alþjóðamálum síðustu daga og vikna hefur sýnt okkur hve hratt aðstæður geta breyst og hve viðkvæm staða okkar getur orðið þegar framboð eða flutningar raskast.
Núverandi birgðir duga aðeins í 20–50 daga, sem undirstrikar nauðsyn þess að huga betur að þessum málum. Eins þurfum við að tryggja varaflugvelli okkar á Akureyri og Egilsstöðum, að þar séu birgðir sem geta annað flugvélum ef sú staða kemur upp sem hefur verið í nágrannalöndum okkar síðustu daga.
Í breyttri heimsmynd er ljóst að við verðum að tryggja þjóðinni traustar og öruggar eldsneytisbirgðir. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær slíkar aðgerðir verða nauðsynlegar – og betra er að undirbúa sig tímanlega en að bregðast seint við.