Umræðan: Benedikt Jóhannesson skrifaði:
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins skrifar í sunnudagsblað Moggans. Mig grunar að margt af því ágæta og skynsama fólki sem ég þekki og er enn innan Sjálfstæðisflokksins geti tekið undir þessi orð, en hafi veigrað sér við því. Hér fylgja nokkrir punktar úr grein hennar:
• Ríkisstjórnin hefur sett þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að sækja um aðild að Evrópusambandinu á dagskrá.
• Hvort um er að ræða einhvers konar áframhald á því ferli sem lauk án niðurstöðu um miðjan síðasta áratug eða nýtt ferli á sama grunni er að mínu mati tæknilegt atriði.
• Mikilvægara er að vitsmunaleg umræða eigi sér stað um stóru drættina í þeirri vegferð sem ríkisstjórnin ætlar að bjóða upp á og gera sér grein fyrir því að ákvörðun um að sækja um aðild, á grundvelli milliliðalauss umboðs frá þjóðinni, væri stærsta ákvörðun sem tekin hefur verið í utanríkismálum Íslands að minnsta kosti frá því við gerðumst aðilar að EES-samstarfinu.
• Hvað varðar væntingar um afleiðingar þess að sækja um þá er hálfur sannleikur að láta eins og þetta yrðu einfaldar eða léttar aðildarviðræður þar sem ekkert breyttist hér heima fyrr en kæmi að því að taka afstöðu til aðildarsamnings. Ef vel á að vera yrði stjórnkerfi okkar að miklu leyti undirlagt aðildarumsókn frá þeim tíma sem viðræður hæfust.
• En það er líka hálfur sannleikur að láta eins og þetta séu að öllu leyti aðlögunarviðræður, að því leyti að allri löggjöf yrði snúið á hvolf til að samræmast ESB-löggjöf – stór hluti lagasafns okkar samræmist ESB-löggjöf nú þegar. En yfirgripsmiklir og mikilvægir þættir lagaumgjarðar gera það ekki, fyrst og fremst þeir sem íslenskt samfélag hefur einmitt viljað halda utan við þá sameiginlegu löggjöf.
• Það er líka rangt að halda því fram að við værum ekki sjálfstæð þjóð eða fullvalda ef við værum aðilar að Evrópusambandinu, aðildarríki ESB eru auðvitað fullvalda og sjálfstæð ríki.
• Gera þyrfti breytingar á stjórnarskránni til þess að löggjöf Evrópusambandsins hefði beina virkni á Íslandi, í stað þess fyrirkomulags sem nú er, þar sem EES-löggjöf fær sömu íslensku þinglegu meðferð og önnur löggjöf.
• Ef svarið verður nei í fyrirhugaðri kosningu í sumarlok er málið hins vegar úr sögunni í íslenskri pólitík, að minnsta kosti í fyrirsjáanlegri framtíð. Ábyrgð okkar er mikil.
• Ábyrgð okkar allra sem kjósenda er því mikil, og er ekki úr vegi að hafa hugföst eftirfarandi orð Bjarna Benediktssonar eldri: „Undir ákvörðun kjósanda kann að vera komin hans eigin hamingja og heill þjóðarinnar. Um þvílíka ákvörðun dugir ekki að ætla, að allt komi í einn stað niður, eða að varpa vandanum yfir á aðra. Kjósandi verður að beita sinni eigin dómgreind, enda þarf hann ekki að gera öðrum en sjálfs síns samvizku reikningsskil.“
• Æðsti tilgangur allra stórra ákvarðana okkar sem nú byggjum Ísland er að tryggja sem best sjálfstæði, velsæld, varnir og fullveldi til langrar framtíðar og fyrir komandi kynslóðir. Um það snýst umræðan nú.