„Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra Samfylkingarinnar, er að innleiða eina hörðustu stefnu í málefnum flóttafólks sem finnst í Evrópu.“
Sema Erla Serdaroglu.
Sema Erla Serdaroglu skrifaði þennan pistil:
„Tiltekt í útlendingamálum“ er einhver ógeðfelldasta orðræða sem sést hefur hjá islenskum valdhöfum í langan tíma. Að slíkri orðræðu skuli vera haldið á lofti af Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands, og Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, er með ólíkindum!
Þegar talað er um málefni útlendinga er verið að tala um fólk. Ekki tölfræði, ekki dvalarleyfi, ekki peninga. Við erum að tala um fólk. Í því samhengi sem þessi orð ráðherranna eru látin falla er verið að tala um fólk á flótta, einn jaðarsettasta og réttindalausasta hóp fólks í íslensku samfélagi. Og vísað er til hans eins og einhverrar óværu sem þarf að losna við. Eins og rusls sem þarf að fara með út.
…að hreinsa landið af flóttafólki.
Þessi orðræða ráðherranna er kaldlynd og hún er fordómafull. Þegar þú bætir því síðan við að þú ætlir að „herða tökin í útlendingamálum“ eins og ráðherra Viðreisnar segir á samfélagsmiðlunum sínum og „að það þurfi að tryggja öruggari landamæri“ eins og forsætisráðherra Samfylkingarinnar (og fleiri) hefur ítrekað sagt, ertu kominn með orðræðu sem einkennist af yfirburðahyggju og ýtir undir afmennskun fólks í neyð sem leitar hér skjóls.
Það er dapurlegt að fulltrúar jafnaðarfólks og frjálslyndra á Alþingi hafi fallið í hina ömurlegu gryfju popúlismans og ætli að halda áfram að níðast á jaðarsettum hópum til þess að marka sér stöðu, sækja sér fylgi og hylma yfir það sem illa gengur. Eins og allir aðrir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa gert síðustu misseri. Þvílík vonbrigði. Þvílíkur aumingjaskapur.
Hvers vegna ekki að vera betri?
Í stað þess að tryggja mannréttindi fólks og stuðla að mannúðlegri mótttöku flóttafólks ætla Samfylkingin og Viðreisn nú að leggja sitt af mörkum til þess að hreinsa landið af flóttafólki. Þau ætla að halda áfram með þá stefnu sem hefur verið ríkjandi á Íslandi í málefnum flóttafólks síðan í seinni heimsstyrjöldinni og gengur út á að halda flóttafólki frá Íslandi og landinu eins hreinu og hægt er. Þau ætla að ganga lengra í því að svipta flóttafólk grundvallarréttum sínum, svipta þau frelsi sínu og fangelsa og innleiða hér lög sem tryggja að nánast enginn fær hér vernd. Að enginn komist inn í landið!
Hvað gengur á?
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra Samfylkingarinnar, er að innleiða eina hörðustu stefnu í málefnum flóttafólks sem finnst í Evrópu. Samkvæmt þeim lagafrumvörpum sem hafa verið lögð fram og leggja á fram ætlar ríkiastjórnin að ganga lengra en hún þarf „til þess að innleiða samræmdar reglur“ og taka upp harkalegri nálgun gagnvart flóttafólki en mörg önnur ríki sem við berum okkur saman við gera. Og þá er mikið sagt.
Hvað gerðist?
Aðhaldið innan þings er ekkert…
Konur með völd geta líka farið illa með þau. Konur með völd beita jaðarsetta hópa líka ríkisofbeldi. Konur gera líka ljóta hluti. Það er ekki vinsælt að benda á það sem ríkisstjórnin er að gera í málefnum flóttafólks því ráðherrarnir eru vinsælar konur og þær eru á frjálslynda vinstri vængnum. Þess vegna segir enginn neitt við orðræðu þeirra og aðgerðum og þessi hættulega orðræða valdhafa fær að viðgangast. Aðhaldið innan þings er ekkert, utan þings segir enginn neitt og sporin hræða.
Enginn mótmælir aðför þeirra að flóttafólki því þær eru konur. Það er enginn að tala um flóttabörnin á götunni í íslensku samfélagi í dag, börnin sem fá ekki að fara í leikskóla, flóttafólkið sem á ekki fyrir mat og sefur úti, fólkið sem er beitt ofbeldi og fær ekki læknisþjónustu. Þolendur mansals sem eru sendir úr landi. Fólkið sem er beitt ríkisofbeldi á hverjum degi vegna stefnu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Enginn andmælir því þau sem bera ábyrgð eiga að vera frjálslyndar konur!
Kristrún Frostadóttir bað þingmenn um að gæta orða sinna á nýhöfnu þingi. Orðum fylgi ábyrgð og tónn skipti máli sagði hún. Það er rétt hjá forsætisráðherra. Það væri óskandi að hún og ríkisstjórn hennar myndi tileinka sér það sem hún ber á borð fyrir aðra og hætti að ýta undir fordóma og andúð í garð flóttafólks með orðræðu sinni og aðgerðum.
Þessi kvennastjórn hefur tækifæri til þess að gera betur en fyrri ríkisstjórnir. Þið getið markað ykkur stöðu með því að gera betur en allir popúlistarnir sem keppast um atkvæðin sem fást út á útlendingaandúð. Hvers vegna ekki að vera öðruvísi og setja mannúð, samkennd og umhyggju í garð þeirra sem þurfa á stuðningi okkar að halda í forgang.
Hvers vegna ekki?
Það er ekki of seint. En það verður það bráðum.