- Advertisement -

Glæsiskeið Sjálfstæðisflokksins

„Hvernig getur Sigmundur Davíð nautakjötsæta náð kjörfylgi í evruvæddasta kjördæmi landsins, án nokkurra hagsmuna í kúabúskap?“

Vilhjálmur Bjarnason.

Stjórnmál: Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður skrifaði:

„Eitt mest glæsiskeið í sögu Sjálfstæðisflokksins var í tíð mjög vondrar vinstri stjórnar árin 1956-1958.

Sú vinstri stjórn, er þá sat, er sennilega þriðja versta stjórn lýðveldissögunnar. Aðeins síðari vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar, 1978-1979, og vinstri stjórn Gunnars Thoroddsen, 1980-1983, eru verstu stjórnir í samanlagðri kristni, en þá var stjórnarfar enn verra en á árunum 1956 til 1958.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Árið 1958 vann Sjálfstæðisflokkurinn sinn næststærsta sigur í borgarstjórnarkosningum, stærsti sigurinn var í kosningunum 1990. Þá var einnig vond vinstri stjórn við völd í landinu.

Nú eru þetta allt vesalingar.

Hve oft er ég búinn að hlusta á Ólaf endursegja mér ræðuna, sem Birgir Kjaran hélt í Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll daginn fyrir kjördag, hvernig hann þjappaði stuðningsfólkinu saman og hver og einn sá um sína við að koma þeim ákjörstað.

Hann Birgir Kjaran, hann Birgir með símaskrá var kjarnorkusprengja! Þótt andfemínisti sé varð Ólafur að viðurkenna að konurnar í Hvöt voru dínamít. Nú eru þetta allt vesalingar, Brynhildur Andersen látin og Sigríður Ásthildur farin úr flokknum!

Hvernig getur Sigmundur Davíð nautakjötsæta náð kjörfylgi í evruvæddasta kjördæmi landsins, án nokkurra hagsmuna í kúabúskap? Sennilega glæsimennskan! Eitthvað, sem ritara skortir.“

Hér að neðan er grein sem Vilhjálmur skrifaði í Moggann:


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: