Missi hún stuðning Guðlaugs má segja að hún sé á berangri í flokknum og litlar líkur á því að hún geti endurnýjað umboð sitt á næsta landsfundi.
Ólafur Arnarson.
„Á meðan ríkisstjórnin stendur vel saman ríkir sundrung innan stjórnarandstöðunnar, bæði innan einstakra flokka og milli þeirra,“ segir í nýrri grein Ólafs Arnarsonar sem birt er á dv.is.
Höldum áfram:
„Alþekkt er að Guðrúnu Hafsteinsdóttur hefur mistekist að festa sig í sessi sem foringi Sjálfstæðismanna. Hún nýtur ekki meirihlutastuðnings innan þingflokksins og fylgi flokksins hefur haldið áfram að hríðfalla eftir að hún tók við formennsku í mars. Framganga hennar og annarra þingmanna flokksins í veiðigjaldamálinu hefur verið með þeim hætti að ekki þykir til mikils sóma. Grímulaus hollusta við sérhagsmuni stórútgerðarinnar er ekki til þess fallin að efla virðingu fyrir þingflokki Sjálfstæðismanna eða gera flokkinn að raunhæfum kosti fyrir kjósendur með borgaralegar áherslur.“
Sannleikurinn blasir við hverjum þeim…
Ólafur skrifaði meira um auðséð vandræði formanns Sjálfstæðisflokksins:
„Svo virðist sem enn hafi fjarað undan Guðrúnu innan þingflokks Sjálfstæðismanna. Hún hefur hingað til getað gengið að stuðningi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og stuðningsmanna hans vísum en nú munu vera blikur á lofti í þeim efnum. Missi hún stuðning Guðlaugs má segja að hún sé á berangri í flokknum og litlar líkur á því að hún geti endurnýjað umboð sitt á næsta landsfundi. Athygli hefur vakið hve harkalega Guðrún hefur talað máli stórútgerðarinnar. Engu máli skiptir hversu oft hún endurtekur það að hún og aðrir þingmenn flokksins hafi ekki gengið erinda gríðarlegra sérhagsmuna stórútgerðarinnar. Sannleikurinn blasir við hverjum þeim sem fylgst hefur með umræðum um veiðigjaldafrumvarpið í þinginu.“