Við í Sjálfstæðisflokknum munum leiða þessa umræðu af festu.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
Stjórnmál: Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstsæðisflokksins skrifaði:
„Ég treysti þjóðinni, en ég treysti ekki þessari ríkisstjórn. Vegferð ríkisstjórnarinnar að teyma þjóðina inn í ESB hófst í dag.
Þetta brölt sýnir raunverulega forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Á meðan heimilin glíma við þráláta verðbólgu, háa vexti og atvinnuleysi á uppleið, velur ríkisstjórnin að setja allt á hliðina og leiða þjóðina inn í sundrandi ESB umræðu, á miðju sumri, þegar fólk á að fá frið til að vera með sínum. Þessi tímasetning er ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar í fyrirrúmi heldur vegna hentisemi ríkisstjórnarinnar.
Þjóðin á betra skilið.
Forsætisráðherra hefur sjálf sagt að þetta sé ekki rétti tíminn til að fara í þessa vegferð og að svona mál krefjist mjög sterks umboðs og mikillar samstöðu. Nú hegðar ríkisstjórnin sér eins og hún hafi fengið skýrt umboð, en ekkert slíkt liggur fyrir.
Ríkisstjórnin mun reyna að stilla þessu upp þannig að andstaða við ESB jafngildi andstöðu við lýðræði. Það er lýðskrum. Ég vil að þjóðin fái að segja sitt. En ég vil að hún fái að segja sitt á grundvelli staðreynda og upplýstrar og vandaðrar umræðu. Ekki á grundvelli frasapólítíkur og sýndarmennsku.
Fyrr í vikunni var tillaga um aðild að ESB kolfelld á norska Stórþinginu. Norðmenn átta sig á því að aukið samstarf við Evrópu er eitt, en framsal ákvörðunarvalds og forræði yfir auðlindum til Brussel er annað.
Við í Sjálfstæðisflokknum munum leiða þessa umræðu af festu. Við viljum góða samvinnu við Evrópu og sterkan EES-samning, og við viljum fyrst og síðast standa vörð um fullveldi, auðlindir og hagsmuni Íslands.
Ríkisstjórnin má ekki nota þjóðaratkvæðagreiðslu sem pólitískt skjól fyrir uppgjöf í efnahagsmálum. Þjóðin á betra skilið.