„Dómstóllinn hefur ekki heldur neina lögsögu í málinu.“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Umræðan: Hannes Hólmsteinn Gissurarson er ekki hrifinn af þeirri ákvörðun að Ísland hafi gerst aðili að kæru Suður-Afríku gegn Ísrael. Hann skrifaði:
„Eitthvert mesta óheillaspor íslenskra ráðamanna hin síðari ár er sú ákvörðun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur að gerast aðili að kæru Suður-Afríku á Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Ekkert annarra Norðurlanda er aðili, en það eru hins vegar Alsír, Kína, Kúba og Venesúela, sem eru öll sek um alvarleg mannréttindabrot. Á meðal þeirra ríkja, sem hafa gerst aðilar Ísraels megin, eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Þýskaland og Ítalía. Þessi ákvörðun Þorgerðar Katrínar var algerlega að nauðsynjalausu, en er til þess fallin að vekja mikla óánægju Bandaríkjamanna, sem hafa allt frá 1941 tryggt öryggi okkar, vopnlausrar smáþjóðar.
Auðvitað er kæra Suður-Afríku tilhæfulaus. Ísrael hefur ekki framið neitt þjóðarmorð í Gaza með hinum hörðu viðbrögðum sínum við hinni villimannslegu árás frá Gaza 7. október 2023. Dómstóllinn hefur ekki heldur neina lögsögu í málinu, því að hann var stofnaður til að skera úr ágreiningi ríkja, en ekki vera vettvangur málgefinna vinstri sinnaðra fræðimanna og farísea.“