- Advertisement -

Hótum um að halda þinginu í áframhaldandi gíslingu

Sigurjón Þórðarson alþingismaður Flokks fólksins skrifar:

Þessi yfirlýsing Hildar Sverrisdóttur fyrir hönd Framsóknar-, Mið- og Sjálfstæðisflokks, getur vart talist annað en hótun um að misbeita áfram leikreglum þingsins til þess að koma í veg fyrir framgang mála á Alþingi.

Ef BDM flokkarnir munu halda áfram að standa í vegi fyrir málum á borð við: umbætur á lífeyriskerfinu, stjórn fiskveiða, auðvelda að gera upptækan hagnað af brotastarfsemi, takast á við riðu í sauðfé, útlendingamálum, einokun á kjötvörumarkaði m.a. með þeim afleiðingum að þjófélagið situr uppi með stórhættulega menn sem misnotað hafa það skjól sem þeim hefur verið veitt með ofbeldi m.a. sveiflandi sveðjum, þá þarf ríkisstjórnin að sýna snerpu.

Eina svarið ef stjórnarandstaðan stendur við þessa hótun er að beita 71. gr. þingskapa eins oft og þurfa þykir. Það eina sem gerist er að þjóðþrifamálin fá framgang.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Yfirlýsing Hildar Sverrisdóttur

Það eru sérstakir tímar uppi á Alþingi Íslendinga, sérstakir tímar og aðstæður sem hafa ekki komið upp í stjórnmálasögu þjóðarinnar. Af þeim sökum mun ég flytja hér sérstaka yfirlýsingu fyrir hönd þingflokka stjórnarandstöðunnar.

Framganga hæstv. þingforseta með beitingu 71. gr. þingskapalaga með fordæmalausum hætti án nokkurrar umræðu þar um skapaði trúnaðarbrest á milli stjórnarandstöðunnar og forseta. Valdbeiting kallar á viðbrögð og varkárni þess sem verður fyrir henni. Forseta hlýtur að hafa verið ljóst að sú ákvörðun er ekki án afleiðinga og mun ekki verða án afleiðinga, lita samskipti okkar og setja svip á þinghald kjörtímabilsins. Hér varð alvarlegur trúnaðarbrestur á milli stjórnarandstöðunnar og forseta. Við komumst ekki hjá því að líta svo á að forseti sé fyrst og fremst fulltrúi meiri hlutans en ekki forseti alls þingsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: