Guðmund tel ég einn af farsælustu og framsýnustu útgerðarmönnum landsins, með skýra sýn á að auka verðmætasköpun úr íslenskum sjávarafurðum.
Vilhjálmur Birgisson.
Vilhjámur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, skrifaði:
Það hefur vakið mikla athygli að Brim hf. hefur gert samkomulag um kaup á öllum hlutum í Lýsi hf. fyrir samtals þrjátíu milljarða króna. Kaupin eru háð samþykki stjórna beggja félaga, hluthafafundar Brims og Samkeppniseftirlitsins. Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar mun kaupverðið skiptast jafnt í reiðufé og hlutabréf í Brim hf., miðað við dagslokagengi félagsins þann 23. september, sem var 63 krónur á hlut. Frá heildarverðmæti hlutafjár dragast vaxtaberandi skuldir Lýsis hf., sem námu rúmum fimm komma tveimur milljörðum króna þann 30. júní 2025.
Í tilkynningu félagsins kemur fram að mikil tækifæri felist í samlegð og vexti. Kaupin styrki hráefnisstöðu Lýsis og færi Brim lengra upp virðiskeðju sjávarafurða.
Það skapar sterkan og stöðugan grunn…
Sem Akurnesingur sé ég þessi kaup sem mikið sóknarfæri fyrir bæjarfélagið okkar. Lýsi á gríðarlega mikilvæga starfsemi hér á Akranesi í gegnum dótturfyrirtækið Akraborg, sem vinnur úr þorsklifur og framleiðir niðursoðnar afurðir sem þekktar eru um allan heim. Með kaupum Brims á Lýsi verður hráefnið betur tryggt, enda er um að ræða þorsklifur sem kemur beint af skipum Brims. Það skapar sterkan og stöðugan grunn fyrir áframhaldandi starfsemi Akraborgar og bætir um leið verðmætasköpun fyrir allt fyrirtækið.
Þetta er líka einstakt tækifæri fyrir Brim til að efla enn frekar fullnýtingu á afurðum sínum. Með því að tengja saman veiðar, vinnslu og framleiðslu á hágæða afurðum eykst virði hráefnisins, og það er leið sem framtíðin kallar á.
Við megum ekki gleyma því að bæði Akraborg og Vignir G. Jónsson eru gríðarlega flott og vel rekin fyrirtæki hér á Akranesi. Þau hafa byggt upp sterka sérstöðu og sannað að hér er til staðar þekking, gæði og metnaður sem stenst alþjóðlega samkeppni.
Ég trúi því innilega að Guðmundur Kristjánsson muni efla þessa vinnslu enn frekar hér á Akranesi. Guðmund tel ég einn af farsælustu og framsýnustu útgerðarmönnum landsins, með skýra sýn á að auka verðmætasköpun úr íslenskum sjávarafurðum. Hann hefur einnig sýnt að hann býr yfir sterkri samfélagslegri ábyrgð gagnvart nærsamfélögum, þar sem hann leggur áherslu á að byggja upp öfluga starfsemi sem nýtist bæði starfsmönnum, fjölskyldum þeirra og sveitarfélaginu í heild.
Þessi samruni er ekki aðeins viðskiptafrétt heldur gleðifrétt fyrir Akranes. Hann felur í sér ný tækifæri fyrir bæinn okkar, tryggir áframhaldandi starfsemi Akraborgar, styrkir stöðu Akraness sem vinnslustaðar í fremstu röð, og undirstrikar að með sterkum fyrirtækjum og samfélagslega ábyrgum rekstri er hægt að skapa verðmæti sem nýtast öllum.