Stjórnmál:Sprotasjóður leik- grunn- og framhaldsskóla hefur úthlutað 64.370.000 kr. til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu á laugardag. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastiga. Umsýsla sjóðsins er hjá Rannís. Áherslusvið sjóðsins árið 2026 voru:
- Grunnþáttur menntunar: Lýðræði og mannréttindi.
- Nýjar leiðir í kennsluaðferðum og námsmati með sjálfstæði og virkni nemenda að markmiði.
Sjóðnum bárust 39 gildar umsóknir að undangenginni auglýsingu og sótt var um rúmlega 146 m.kr.
Á gagnatorgi Rannís er hægt að sjá yfirlit styrktra verkefna Sprotasjóðs og nánari upplýsingar um hvert verkefni með því að velja númer verkefnis fremst í töflu.
Á gagnatorgi Rannís er einnig hægt að nálgast upplýsingar um styrkt verkefni Sprotasjóðs frá árinu 2022 og stutt lýsing úr lokaskýrslu birtist eftir að verkefni er lokið.
Eftirfarandi verkefni hlutu styrk árið 2026:
