Á vefnum ff7.is er þessi ágæta frétt:
Tollar á innflutning til Bandaríkjanna hafa hækkað jafnt og þétt frá því í apríl þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti breytta stefnu landsins í tollamálum.
Í júlí námu tollatekjur bandaríska ríkisins 27,7 milljörðum dollara sem er nærri fjörföldun frá sama tíma í fyrra.
Þrátt fyrir hækkun tekna eykst hallinn hjá bandaríska ríkissjóðnum og er hann nú 7 prósentum hærri en á sama tíma í fyrra og skrifast sú þróun helst á aukin útgjöld til almannatrygginga og heilbrigðismála. Háir vextir koma líka niður á mjög skuldsettum ríkissjóði. „Útgjöldin vaxa hraðar en tekjurnar,“ staðfesti fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í gær.