Umræðan: Eftir að Lilja Dögg Alfreðsdóttir var kjörin formaður Framsóknarflokksins hefur gengið á ýmsu. Ingibjörg Isaksen sem hafði verið þingflokksformaður frá því hún var kjörin á þing var sett af. Stefán Vagn Stefánsson, nýkjörinn varaformaður Framsóknar var gerður að þingflokksformanni. Stórar breytingar strax í upphafi.
Nú hefur það gerst að Brynju Dan Gunnarsdóttur, eina bæjafulltrúa Framsóknar í Garðabæ verið varpað fyrir róða. Brynja var í fyrsta sæti Famsóknar við síðustu kosningar og náði kjöri í bæjarstjórn. Þá voru liðin tólf ár frá því Framsókn átti síðast bæjarfulltrúa þar. Þá var Hlynur í öðru sæti.
Körfuboltahetjan og margreyndi landsliðsmaðurinn og margfaldur Íslandsmeistarinn Hlynur vermir nú toppsæti Framsóknar í Garðabæ.
Nú hefur sem sagt verið ákveðið að hafna Brynu Dan og Hlynur færist þá úr öðru sæti og í það fyrsta. Brynja er eðlilega ósátt. Hún hefur sagt skilið við Framsókn og mun starfa sem óháður bæjarfulltrúi fram að kosningunum í maí.