- Advertisement -

Solaris svara Guðrúnu Hafsteinsdóttur

Allt það fólk sem hingað kom var með dvalarleyfi útgefið af undirstofnun Guðrúnar og var flugið til Íslands skipulagt af stjórnvöldum.

Dómsmál: Solaris hafa stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttir eins og sjá má fréttinni þar um:

„Solaris hafa stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fyrir meiðyrði.

Vegna yfirlýsingar Guðrúnar Hafsteinsdóttur á facebook síðu sinni fyrr í dag vilja smtökin vekja athygli á eftirfarandi:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Solaris mótmæla því að það séu þjóðarhagsmunir að formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra fái að fara fram með hrein ósannindi án þess að sjálfboðaliðar og hjálparsamtök fái rönd við reist.

Af því tilefni vilja Solaris vekja athygli þjóðarinnar á því að Guðrún Hafsteinsdóttir var dómsmálaráðherra, og átti sæti í ráðherranefnd þáverandi ríkisstjórnar um málefnið, þegar fólki frá Palestínu var komið til aðstoðar yfir landamærin til Egyptalands. Þaðan þurfti að koma fólkinu um borð í flug IOM, Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar, til Íslands.

Til að komast um borð í vélina þurfti hver farþegi að hafa dvalarleyfi útgefið af Útlendingastofnun, undirstofnun Guðrúnar, sem og skjöl sem útbúin voru í utanríkisráðuneytinu. Guðrún hafði því vitneskju um allt ferlið og geta fjölmiðlar án efa fengið að sjá fundargerðir þess efnis. Telja samtökin því að Guðrún Hafsteinsdóttir sé, gegn betri vitund, að fara með ósannindi þegar hún sakar sjálfboðaliða samtakanna um að hafa aðstoðað fólk, „sem enginn vissi deili á “ „…með mútugreiðslum”.

Allt það fólk sem hingað kom var með dvalarleyfi útgefið af undirstofnun Guðrúnar og var flugið til Íslands skipulagt af stjórnvöldum.

Tjáningarfrelsi Guðrúnar er með engu heft, enda er henni frjálst að viðhafa hver þau ósannindi sem henni hugnast. En ef ósannindin beinast að æru eða orðspori annarra þá verður Guðrún, skv. Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands, að ábyrgjast þau fyrir dómi. Stendur það fyrir dyrum og mun Solaris því ekki taka þátt í frekara hnútukasti við formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum, heldur leyfa dómsmálinu að hafa sinn gang.“

Fyrir hönd Solaris hjálparsamtaka,

Sema Erla Serdaroglu

formaður Solaris.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: