Vandinn við strætó er ekki að það kosti að nota hann – vandinn er að þú ert ekki að spara tíma með því að nota hann.
sólveig Anna Jónsdóttir.
Umræðan: Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði eftir Silfrið í gærkvöld:
Nýi Píratinn bestur í Silfrinu. Virðist skilja að tilgangur almenningssamgangna er (þó að hann orði það ekki svoleiðis) að taka upp vinnuaflið á morgnana, færa það á vinnustaðina til að framleiða verðmætin og halda umönnunarkerfunum gangandi, og skila því svo heim aftur að vinnuegi loknum.
Hann segir það rétta: Fólk hefur í dag ekki val um að nota almenningssamgöngur. Tíðni ferða er of lítil og þú átt alveg jafn mikið á hættu að vera föst í umferð og sért þú ert á einkabíl. Ein af ástæðunum fyrir því að ég hætti að taka strætó og fór að hjóla er sú að leið 17, sem er annars mjög góð, var yfirleitt alltaf föst í viðbjóðslegri umferð á Suðurlandsbrautinni þegar ég var á heimleið úr vinnu – ég græddi ekkert á því að taka hana, þvert á móti gerði það líf mitt erfiðara og verra.
Vandinn við strætó er ekki að það kosti að nota hann – vandinn er að þú ert ekki að spara tíma með því að nota hann. Um það snýst málið hjá fullorðnu, vinnandi fólki – en fyrir þann hóp eiga almenningssamgöngur að vera.
Mér fannst líka gott hjá honum að segja að lengja þurfi fæðingarorlof – það er algjörlega augljóst, þó að meginstraumsfemínistar og verkalýðsforystan vilji ekki tala um það.
Málefnalegur maður – gott að hlusta á fólk sem getur rætt og útskýrt afstöðu án þess að fara beint í orðasalatið.