Stjórnarandstæðingar standa gegn réttlátri kjarabót öryrkja og ellilífeyristaka
Ég man aldrei á minni löngu ævi eftir að hafa séð svona baráttu verkalýðshreyfingarinnar gegn þessum hópum.
Pétur Hreinsson.
„Samkvæmt þeim [glænýjum tölum] eru meðaltalsgreiðslur þeirra öryrkja sem fá bæði frá TR og lífeyrissjóðum 645.486 kr. á mánuði. Hjá þeim sem eru á endurhæfingarlífeyri er meðaltalið 680.338 kr. á mánuði,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins.
Fjöldi fólks svarar Villa fullum hálsi. Hér er valin umsögn sem Pétur Hreinsson á:
„Það er magnað að sjá Vilhjálm Birgisson ásamt ASÍ komna í baráttu gegn öryrkjum og eldri borgurum. Ég man aldrei á minni löngu ævi eftir að hafa séð svona baráttu verkalýðshreyfingarinnar gegn þessum hópum. Það má líka velta því fyrir sér hvort raunstefna ASÍ sé að passa upp á að láglaunafólk fái litlar kauphækkannir. Það er greinilega mikið launaskrið sem bendir til að fyrirtæki fái ekki fólk í vinnu á þessum kjarasamningum ekki satt?“
En þar þurfum við að fókusera…
Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands og forseti Alþýðusambandsins sagði:
„Kjaragliðnun elli- og örorkulífeyris verður stöðvuð líkt og við í Samfylkingunni sögðum fyrir kosningar. Sanngjörn forgangsröðun fyrir fólkið sem flokkar í stjórnarandstöðu hafa sett sig upp á móti og staðið gegn réttlátri kjarabót fyrir öryrkja og ellilífeyristaka.
Það þarf sannarlega að tryggja að bæði öryrkjar og ellilífeyrisþegar geti framfleytt sér og haldið reisn. En þar þurfum við að fókusera á hópana sem hafa það verst en ekki smyrja þessu yfir alla. Staða öryrkja og ellilífeyrisþega er afar mismunandi. Þetta þarf að rótargreina, finna þennan hóp sem lægst hefur kjörin og honum þarf raunverulega að hjálpa,“ segir Kristján Þórður.