Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, skrifaði fína grein um grein Kolbrúnar Bergþórsdóttur sem birtist í Mogganum, en hún fjallar um auma stöðu Sjálfstæðisflokksins.

„Þegar ég sé málflutning Sjálfstæðismanna þessa mánuðina velti ég því fyrir mér hvort þeir eigi enga vini sem geta sagt þeim á hvaða villugötum þeir eru í sínum málflutningi og vinnubrögðum.
Nú í vikunni heyrði ég sama daginn í tveimur ágætum Sjálfstæðismönnum, nú líklega fyrrverandi Sjálfstæðismönnum, sem voru miður sín yfir því hvernig talsmenn flokksins létu. Morgunblaðið slær tóninn og hefur nú alveg snúið við blaðinu frá því sem var lengst af þegar blaðið var helsta málgagn þeirra sem aðhylltust viðskiptafrelsi og vestræna samvinnu.
Í honum er ekki vitglóra.
Það vill samt svo til að einmitt þar heyrist vikulega rödd hinnar almennu skynsemi, sjónarhorn Kolbrúnar Berþórsdóttur. Í sunnudagsblaði helgarinnar segir hún meðal annars:
„Enn sem fyrr er málflutningar stjórnarandstöðunnar fáránlegur. Í honum er ekki vitglóra. Enginn ætlar sér að kúga íslensku þjóðina inn í Evrópusambandið. Þjóðin mun hins vegar verða spurð, vonandi fyrr en síðar, hvort hún vilji taka upp viðræður við Evrópusambandið um inngöngu. Ríkisstjórn sem spyr þjóðina hvað henni hugnist best er ekki að kúga einn né neinn.
Er stjórnarandstöðunni gjörsamlega fyrirmunað að stunda skynsamlegan málflutning? Það er eins og henni sé ekki lengur sjálfrátt. Hún er blýföst í að stunda óskammfeilinn hræðsluáróður og í þeim efnum er henni ekkert heilagt.
Enn og aftur vekur málflutningur Sjálfstæðisflokksins furðu. Þarna eru um að ræða flokk sem hefur fram að þessu viljað vera fjöldahreyfing og erlend samskipti og samvinna hafa þar verið talin af hinu góða. Það er næstum eins og sjálfseyðingarhvöt hafi gripið Sjálfstæðisflokkinn, allavega stefnir hann hraðbyri að því að gera sig marklítinn. Sjálfstæðisflokkurinn er í tilvistarvanda.“
Kolla veit hvað hún syngur, en Mogginn og Sjálfstæðisforystan hlusta því miður ekki á þann söng.“