Umræðan/Facebook: Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifaði:
Magnaður lestur. Sérstakt hrós fær Rafn Ágúst blaðamaður sem dregur vel fram tvískinnunginn í málflutningi Þorgerðar Katrínar (og flestra Vestrænna leiðtoga) með spurningum sínum.
Athugum hvort ég skilji þetta rétt:
Blaðamaður: Hver eru þín viðbrögð við sprengjuárásum BNA á Venesúela og mannrán á þjóðhöfðingja fullvalda ríkis?
Þorgerður: Þetta var vel hepnnað hjá þeim. Nú er Venesúela laust við harðstjóra. Ég vona að þetta verði til þess að lýðræði og mannréttindi breiðist út í Venesúela.
Blaðamaður: Trump virtist nú hvorki boða lýðræði eða mannréttindi fyrir Venesúela?
Þorgerður: Ég ætla ekki í einhverjar fréttaskýringar. Við fylgjumst með hvort það verði ekki bara lýðræði og mannréttindi eftir valdaránið. Og ég er alltaf að segja að Ísland á allt sitt undir að alþjóðalög séu virt, það er mjög mikilvægt að alþjóðalög séu virt.
Blaðamaður: Voru þessar sprengjuárásir á Venesúela og þetta mannrán BNA á þjóðhöfðingja fullvalda ríkis ekki klárt brot á Stofnsamningi SÞ?
Þorgerður: „Eins og ég segi, við fylgjumst með. Við gerum þá kröfu að þar sé farið eftir nákvæmlega stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna […]. Og við gerum þær kröfur, hvort sem það er til Bandaríkjanna eða annarra þjóða. Það sem ég vona að gerist ekki er að við tökum fókusinn af Rússlandi.”
Blaðamaður: Fordæmir Ísland þessar aðgerðir?
Þorgerður: „Við munum einfaldlega fylgjast með þessu alveg eins og nágrannaríkin okkar, Noregur og aðrar Norðurlandaþjóðir sem og Evrópusambandið. Við munum bara fylgjast vel með þessum aðstæðum í Venesúela og sjá hvernig fram vindur. En undirstrika að framvindan verði á forsendum lýðræðislegs þankagangs og nálgunar. Og það skiptir máli að svo verði gert. Allavega er þessi einræðisherra farinn og þá vonum við að lýðræði taki við“
Blaðamaður: Hvað með Grænland? Þurfa Grænlendingar ekki að óttast svipuð örlög?
Þorgerður: Nei af því að Danmörk er í NATO og það skiptir màli að alþjóðalög séu virt gagnvart NATO ríkjum.
–
Þar höfum við það. Alþjóðalög skipta bara máli ef það hallar á hlut NATO ríkja.
Svosem hernaðarstefna NATO í hnotskurn en vá, ekki datt mér í hug að sjá þetta jafn hreinskilnislega og skilmerkilega sett fram.
Bandaríkin mega fara í stríð við hvaða land sem er, skella í valdarán og hernám og bara pjúra arðrán. Allt snar og kolólöglegt samkvæmt alþjóðalögum.
Bandaríkin mega bara ekki gera þetta gagnvart NATO, þar skiptir máli að alþjóðalög séu virt.
Þetta eru leiðtogar Evrópu í dag. Engin prinsipp. Engin virðing fyrir alþjóðalögum. Það á bara að kveikja í húsinu sem eftirstríðs kynslóðin byggði og labba hlæjandi í bankann.
ATH: Allt sem ekki er innan gæsalappa er mín samantekt á viðtalinu, það sem er innan gæsalappa er bein tilvitnun.