- Advertisement -

„Þrátt fyrir allt er líklegt að smæð okkar verði okkur styrkur“

Stjórnmál/Facebook: Benedikt Jóhannesson skrifaði:

Einn eftirminnilegasti stjórnmálamaður Íslands mælti svo á landsfundi Sjálfstæðisflokksins árið 1989:

„Hugsanlega verður þó skynsamlegast að óska beinlínis eftir viðræðum um inngöngu Íslands í Evrópubandalagið, þótt menn séu um leið reiðubúnir að láta inngöngu ráðast af því, hvort þau skilyrði, sem henni kunna að fylgja, þyki aðgengileg eða ekki. Verði sú niðurstaðan, að þau séu óaðgengileg talin, hafa menn heldur engar brýr brotið að baki sér. Og þrátt fyrir allt er líklegt að smæð okkar verði okkur styrkur ásamt með því að við erum að véla við bandalagsþjóðir okkar í Atlantshafsbandalaginu og margar hefðbundnar vinaþjóðir, þar sem við njótum trausts.“

Þetta er einmitt kjarni málsins, jafnvel enn fremur nú en þá í ljósi þess hvaða stefnu heimsmálin hafa tekið. En alltaf voru einhverjir sem sáu vinabandalaginu í Evrópu allt til foráttu. Hann hélt áfram:

Þú gætir haft áhuga á þessum
Þessi mynd fylgdi skrifum Benedikts.

„Það er því óheppilegt að borið hefur á því, að við séum sjálfir að búa okkur til skilyrði og mála skrattann á vegginn og þar með að veikja okkar eigin samningsstöðu er við mætum með sjálfskapaða annmarka til viðræðna við Evrópubandalagið.“

Þá eins og nú voru úrtölumenn sem töldu að sambandið væri til þess að draga úr sjálfstæði eða ræna auðlindum aðildarþjóða, sem auðvitað er fjarri lagi. Lokaorðin kjarna vel að við eigum auðvitað að ganga til samningaviðræðna og halda á okkar málstað með reisn og styrk, sannfærð um að ná fram hinu besta. Lokaorðin voru þessi:

„Við megum síst af öllu ganga að þessu viðfangsefni með þrá um forna innilokun og einangrun, alteknir af ótta og kjarkleysi. Við verðum að sýna reisn og styrk og forðast einangrunarþörf og minnimáttarkennd. Til slíkra viðræðna hljótum við að ganga sannfærðir um það að reyna að ná fram hinu besta, en jafnframt tilbúnir til þess að hverfa frá þeirri leiðinni, ef niðurstaðan er ekki þolanleg.“

Betur verður þetta vart orðað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: